Lykilstærðir í hótelgeiranum að komast í svipað horf og fyrir faraldurinn
![„Hótelrekendur eru bjartsýnir á komandi sumar en þurfa þó að halda vel á spöðunum ef takast á að mæta miklum kostnaðarhækkunum undanfarið, bæði í aðföngum og launum,“ segir Kristófer Oliversson, framkvæmdastjóri CenterHotels og formaður FHG.](https://www.visir.is/i/6B76354276FB91F799B2B5B07ABCC4E0C9DB308FE08004A22B455D1946C139ED_713x0.jpg)
Í stórum dráttum eru helstu lykilstærðir í hótelgeiranum að komast í svipað horf og þær voru fyrir Covid-19 heimsfaraldurinn. Dvalarlengdin er áþekk og verð í fyrrasumar, leiðrétt fyrir verðlagsbreytingum, voru ekki fjarri því sem fyrir farsóttina einkum þegar leið á sumarið, að sögn formanns Félags fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu (FHG).