Lífið

Stúlka Frostadóttir fædd og nefnd

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Feðginin á fæðingardeildinni.
Feðginin á fæðingardeildinni. Frosti Logason

Dóttir fjölmiðlamannsins Frosta Logasonar og Helgu Gabríelu Sigurðardóttur matreiðslumanns er komin í heiminn og hefur verið nefnd Birta. Nafnið er í höfuðið á systur Helgu Gabríelu sem heitir Birta Hlín.

„Lífið sem verður alltaf stærra og fallegra. Við fjölskyldan erum hreinlega að springa úr þakklæti. Birta Frostadóttir kom í heiminn á Landspítalanum í morgun og öllum heilsast vel. Ást og hamingja í sjöunda himni,“ skrifar Frosti við myndafærslu af fæðingardeildinni.

Stúlkan er þriðja barn þeirra hjón en fyrir eiga þau tvo drengi.

Hamingjuóskum rignir yfir fjölskylduna við færsluna frá þjóðþekktum einstakingum á borð við Sölva Tryggvason, sem heldur úti hlaðvarpi líkt og Frosti, knattspyrnumanninum Herði Björgvini Magnússon og útvarpskonunni Siggu Lund.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.