Tryllt ormakeppni í stórafmæli Kalla Íris Hauksdóttir skrifar 28. ágúst 2023 14:36 Hjónin Tobba Marinós og Karl Sigurðsson héldu glæsilega garðveislu við Hringbrautina í Vesturbæ Reykjavíkur. aðsend Karl Sigurðsson, Baggalútur og fyrrverandi borgarfulltrúi, fagnaði fimmtugs afmæli sínu um helgina sem leið. Í tilefni þess hélt eiginkona hans, Tobba Marinós, fjölmiðlakona og frumkvöðull, glæsilega veislu honum til heiðurs.
Veislan var haldin í garðinum heima hjá fjölskyldunni í Vesturbænum. Hjónin eiga tvær dætur sem fögnuðu að sjálfsögðu með föður sínum og fríðum hópi gesta. Hjónin voru nutu skemmtiatriða kvöldsins.aðsend Tobba gerði sér lítið fyrir og byggði svið í garðinum þar sem fjölmargir listamenn stigu á stokk. Má þar nefna Sögu Garðars, Snorra Helgason, Kalla Olgeirs og Siggu Eyrúnu að ógleymdum Baggalúts-mönnum sem skemmtu að sjálfsögðu veislugestum. Klippa: Kalli í Baggalúti fagnaði fimmtudagsafmæli Snyrtileg útihátíð með stórkostlegum atriðum „Það var búið að vera bongó blíða síðastliðnar átta vikur en svo var skítaspá fyrir afmælisdaginn,“ segir Tobba í samtali við blaðakonu og heldur áfram. „Það þýðir ekkert annað en að hugsa í lausnum og þess vegna ræstum við út Seglagerðina Ægi. Tjöldin í garðinum rúmuðu ríflega tvö hundruð manns. aðsend Hingað mættu fjórir menn sem tóku sér góða þrjá tíma í að setja upp tryllt tjöld yfir allan garðinn sem rúmuðu á annað hundrað manns. Þeir redduðu þessu og þetta var því eins og snyrtileg útihátíð með stórkostlegum atriðum“ Kalli Olgeirs sló í gegn Í færslu sinni á Facebook lofsyngur Tobba tónlistarmanninn Kalla Olgeirs sem sló að hennar sögn rækilega í gegn í veislunni. Hjónin Kalli Olgeirs og Sigga Eyrún stigu á stokk í veislunni.aðsend „Lífsgæðin sem fylgja því að eiga þennan mann sem vin Karl Olgeirsson. Kalli okkar er einn hæfileikaríkasti og hæglátasti listamaður landsins. Orðaleikinn á queen Sigríður Eyrún Friðriksdóttir. Takk. Þúsund sinnum takk.“ Þegar leið á kvöldið var boðið upp á kakó og stroh.aðsend Ræður kvöldsins voru sömuleiðis hver annarri betri og við efndum til keppni í hver gæti gert flottasta orminn. Sigurvegarinn endaði með brákað rifbein, en það var allt þess virði,“ segir Tobba og glottir. „Þegar leið á kvöldið var svo boðið upp á kleinur, flatbrauð, kakó og stroh því þetta var jú fimmtudagsafmæli.“ Hér fyrir neðan má sjá myndir úr veislunni. Kalli fagnaði fimmtíu ára afmæli um helgina sem leið.aðsend Snorri Helga, Saga Garðars, eiginkona Snorra og Katrín Odds héldu skemmtilega ræðu eins og þeirra var von og vísa.aðsend Fjöldinn allur af tónlistarfólki skemmti gestum.aðsend Feðginin Kalli og eldri dóttir hjónanna, Regína.aðsend Tobba lét útbúa skreytingar á drykkjarföng veislunnar en hún úthugsar öll smáateiði þegar kemur að skemmtilegum skreytingum. aðsend Girnileg ávaxtaspjót voru meðal veitinga. aðsend Tjaldið kom vel út í garðinum.aðsend
Tímamót Tengdar fréttir Tobba og Kalli gengu í það heilaga í fallegu sveitabrúðkaupi á Ítalíu Þau Tobba Marinósdóttir og Karl Sigurðsson gengu í það heilaga á Ítalíu í gær. Athöfnin fór fram við San Severino Marche á Ítalíu og var yndislegt veður. 20. september 2019 10:30 Mest lesið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Fleiri fréttir „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Sjá meira
Tobba og Kalli gengu í það heilaga í fallegu sveitabrúðkaupi á Ítalíu Þau Tobba Marinósdóttir og Karl Sigurðsson gengu í það heilaga á Ítalíu í gær. Athöfnin fór fram við San Severino Marche á Ítalíu og var yndislegt veður. 20. september 2019 10:30