Lífið

Stjörnulífið: Helga Ómars langar í barn og hlakkar til jólanna

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Sól, tímamót og haustlægð var einkennandi fyrir liðna viku hjá stjörnu landins.
Sól, tímamót og haustlægð var einkennandi fyrir liðna viku hjá stjörnu landins.

Liðin vika var sannkölluð tímótavika hjá stjörnum landins sem einkenndist af stórafmælum, flutningum erlendis og hressandi haustlægð. Það má með sanni segja að septembermánuður hafi mætt með pompi og prakt. 

Leikkonan og flugfreyjan Elma Lísa Gunnarsdóttir fagnaði fimmtudagsmæli sínu um helgina á heimili sínu á Seltjarnarnesi. Stjörnum prýdd veislan virtist hin glæsilegasta þar sem leikkonan Ólafía Hrönn Jónsdóttir leiddi afmælissönginn með góðum undirtektum. Leikstjórinn og eiginmaður Elmu, Reynir Lyngdal, tók einnig lagið fyrir gesti á milli þess sem hann þeytti skífum. 

Stelpurnar í LXS hópnum telja niður dagana í þáttaröð númer tvö sem verður frumsýnd á næstu dögum.

Óveður á Ljósanótt

Poppkóngurinn Páll Óskar Hjálmtýson hefur staðið af sér veðurviðvörun og hélt tryllt ball í Stapanum á Ljósanótt í Reykjanesbæ síðastliðið laugardagskvöld.

Afmæli á Tenerife

Áhrifavaldurinn og athafnakonan Camilla Rut Rúnarsdóttir nýtur lífsins á Tenerife þessa dagana og hélt upp á 29 ára afmælið sitt í sólinni. 

Veiðimæðgur

Hildur Björnsdóttir fór með yngstu dótturina í veiði í Haukdal.

Langar að eignast börn og jólin nálgast

Ljósmyndarinn og áhrifavaldurinn Helgi Ómarsson fékk það hlutverk að vera guðfaðir og segist sjálfan langa að eignast barn.

Haustið í uppáhaldi

Guðmundur Birkir Pálmason eða Gummi kíró segist hrifinn af haustinu. 

Þakklát og fertug

Fegurðardrottningin Manuela Ósk Harðardóttir fagnaði fertugsafmæli sínu um helgina á Sjálandi í Garðabæ.

Sólar sig í Búlgaríu

Fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir nýtur sín í sólinni í Búlgaríu.

Ásdís Rán

Bjór með mynd

Hjónin Sverrir Bergmann Magnússon og Kristín Eva Geirsdóttir fóru í brúðkaupsferð til Dublin þar sem þau fengu bjór með mynd af sjálfum sér. 

Áratuga sambandsafmæli

Ástin heldur sannarlega áfram að blómstra hjá stjörnuparinu Ingileif og Maríu. Þær fögnuðu tíu ára sambandsafmæli um helgina og skrifar Ingileif meðal annars að hún ætli sér að elska Maríu í marga áratugi til viðbótar.

Knattspyrnu-guðmæður

Fótboltaeiginkonurnar Móeiður Lárusdóttir og Elsa Harðardóttir fengu það mikilvæga hlutverk að vera guðmæður dóttur sameiginlegrar vinkonu. 

Móeiður Lárusdóttir

Hótel sumarið mikla

Björn Boði Björnsson, flugþjónn og Worldclass erfingi, birti myndaseríu af sjálfum sér á hinum ýmsu hótelum víðs vegar um Bandaríkin í sumar. 

Búdapest ævintýri

Fjölmiðlaparið Snærós Sindradóttir og Freyr Rögnvaldsson flutti til Ungverjalands á dögunum.  

„Síðustu dagar hafa tekið fram úr öllum okkar væntingum. Ég tók andköf þegar við stigum inn í íbúðina okkar, svo fögur er hún. Urður Vala naut hverrar mínútu í nýjum skóla og Tíbrá byrjar á þriðjudag á leikskóla í 2 mínútna fjarlægð með fallegri lóð. Húsgögnin hafa verið skrúfuð saman, leikföng hafa verið keypt og á morgun eignast ég langþráð straujárn til að geta aftur gengið í uppáhalds fötunum mínum.

Sumir hlutir eru skrifaðir í stjörnurnar. Búdapest er einn þeirra. Takk stjörnur fyrir að færa mér þessa daga og þetta líf,“ skrifar Snærós og birti myndir af fyrstu dögum fjölskyldunnar í Búdapest. 

Svörtu sandar sería tvö

Leikkonan Aldís Amah Hamilton er spennt fyrir fyrsta tökudegi af annarri þáttaröð af spennuþáttaröðinni Svörtum söndum.

„Líður allskonar en aðallega ótrúlega spennt og þakklát að fá að eyða dýrmætum dögum með besta crew-i heimsins og kærkomnum vinum. Þetta verður litla fjölskyldan okkar næstu 4 mánuðina og það eru forréttindi upp á 10,“ skrifar Aldís.

Flutningar til Danmerkur

Erna Kristín Stefánsdóttir, guðfræðingur og áhrifavaldur, og eiginmaður hennar Bassi Ólafsson eru flutt til Danmerkur með fjölskylduna. 

„Þessir ætla að leggja land undir fót og skella sér í leikskóla í Danmörku,“ skrifar Erna við mynd af tvíburadrengjum þeirra hjóna. Fyrir eiga þau einn dreng. Þá á Bassi á eina dóttur úr fyrra sambandi.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Nekt í Hvammsvík og Manuela aftur á föstu

Sól, rómantík og útivist einkenndi liðna viku hjá stjörnum landsins. Leikkonan Aldís Amah Hamilton baðaði sig í náttúrulaug á Evuklæðunum í Hvammvík. Afrekshlaupakonan Mari Jaersk tók þátt í utanvegahlaupinu, Tindahlaupið í Mosfellsbæ þar sem hún bar sigur úr bítum og varð Tindahöfðingi.

„Við erum bara venjulegt par“

Tónlistarkonan Svala Björgvinsdóttir kynntist kærastanum, Alexander Egholm Alexandersyni, fyrir rúmu ári síðan. Fyrsti kossinn átti sér stað í samkvæmi í Garðabæ og segir Svala þau hafa verið óaðskiljanleg síðan.

Stjörnulífið: Þjóðhátíð, Barbie útibíó og ást á Ítalíu

Íslensku stjörnurnar halda áfram að njóta sumarsins hvort sem það er erlendis eða úti á landi. Liðin vika einkenndist af ferðalögum á einni stærstu ferðahelgi ársins, en sumarfríum landsmanna fer senn að ljúka. Útihátíðir voru vinsælar um helgina, þá sérstaklega Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.

Stjörnulífið: Hátíðarhöld, hinsegin dagar og hundaafmæli

Íslensku stjörnurnar halda áfram að njóta sumarsins hvort sem það er í sólinni erlendis eða úti á landi. Fjölmiðlamaðurinn Siggi Gunnars naut Hinsegin daga í Hrísey með ástinni sinni og leikarinn Bjarni Snæbjörnsson var sömuleiðis þar. Stórstjörnurnar Birgitta Haukdal og Páll Óskar létu Mærudaga á Húsavík ekki fram hjá sér fara en Birgitta fagnaði einnig 44 ára afmæli sínu í sínum heimabæ. 

Stjörnulífið: Íslenskar barbies, brúðkaup og bossar

Barbie er sannarlega að eiga stórt móment í dægurmenningunni í dag og samfélagsmiðlastjörnur landsins taka því fagnandi. Ástin einkenndi síðastliðna viku með brúðkaupum og bumbumyndum og Íslendingar halda áfram að ferðast, hvort sem það er innanlands eða að elta sólina. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.