Lífið

Draumkennt þriggja daga brúðkaup á Ítalíu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Tara Sif og Elfar Elí héldu sannkallað bíómynda brúðkaup á Ítalíu 11. ágúst síðastliðinn.
Tara Sif og Elfar Elí héldu sannkallað bíómynda brúðkaup á Ítalíu 11. ágúst síðastliðinn. Tara Sif

Dansarinn og fasteignasalinn, Tara Sif Birgisdóttir og Elfari Elí Schweitz Jakobsson, lögfræðingur, giftu sig í annað sinn, á Ítalíu 11. ágúst síðastliðinn í smábænum Ca­stel Gand­ol­fo. Veisluhöldin stóðu yfir í þrjá daga og var draumi líkast.

Tara Sif og Elfar fengu til liðs við sig brúðkaupstýru (e. wedding planner), sem sá til þess að skipuleggja daginnn með þeim.

„Ég var í samskiptum við hana í gegnum Whatsapp en hún talaði ekki einu sinni ensku svo ég sendi allar upplýsingar í gegnum Google translate. Ég sendi svo á hana myndir af Pinterest eins og ég sá brúðkaupið fyrir mér,“ segir Tara og bætir við: „Hún gerði allt eins og ég hafði hugsað mér, alveg geggjuð!“

Einlæg mæðgnamynd.Tara Sif

Tengdamamma gaf þau saman

Á fimmtudeginum buðu brúðhjónin gestum sínum sem gistu á svæðinu í vínsmökkun í fallegum garði undir berum himni. Um kvöldið var matur, partý og gleði fram á nótt. Samtals voru brúðkaupsgestir 99 talsins. 

Athöfnin fór fram á föstudeginum 11. ágúst undir berum himni á samkomusvæði (e.venue) umkringt gróðri, blómum og útsýni að vatni.

Auk þess var blómabogi, hvítir stólar, blævængir og hvítur dregill að altarinu, rómantískara verður það varla. 

Tara Sif ásamt föður sínum.Tara Sif
Tara Sif

„Tengdamóðir mín gaf okkur saman, hún er leikkona og vissum við að hún myndi gera það vel. Við vorum nú þegar gift svo þetta varð smá leikrit,“ segir Tara kímin.

Systir Elfars, Ísold Ylfa Schweitz, söng lögin Can't Help Falling in Love með Elvis Presley og All of Me með John Legend í athöfninni og Jökull í Kaleo, Vor í Vaglaskógi.

Veislan var haldin í glæsilega skreyttum sal þar sem boðið var upp á fjölréttaseðil af ítölskum sið. 

„Vinkona mín sem er að vinna með mér fór til Rómar í júní og smakkaði réttina og valdi í rauninni það sem átti að vera,“ segir Tara og hlær. 

Glæsileg brúðhjón.Tara Sif
Tara Sif og Elfar glæsileg á brúðkaupsdaginn.Tara Sif
Dagskráin varði langt fram á nótt.Tara Sif
Tara klæddist glæsilegum kjól frá Loforð.Tara Sif

Á laugardagskvöldið kvöddu hjónin gestina með glæsibrag og héldu kveðjupartý í miðborg Rómar á rooftop-bar. 

„Ég gæti ekki verið hamingjusamari með útkomuna,“ segir Tara Sif.
Brúðhjónin ásamt gestum.Tara Sif
Brúðguminn ásamt prúðbúnum veislugestum.Tara Sif
Sandra Björg og eiginmaður hennar, Hilmar.Tara Sif
Sonur brúðhjónanna var í pössun á Íslandi og fengu þá skemmtilega hugmynd að vera með pappaspjald með mynd af honum í raunstærð.Tara Sif
Birgitta Líf, Ástrós og Davíð Steinn.Tara Sif
Dóra Júlía og Bára glæsilegar í veislunni.Tara Sif
Gleðin var við völd.Tara Sif
Brúðurin ásamt vinkonum.Tara Sif
Mikið sungið og dansað.Tara Sif
Allir dansa kónga.Tara Sif
Tara Sif
Rauðir og fjólubláir síðkjólar áberandi.Tara Sif
Hressar skvísur.Tara Sif
Hamingjan skín af brúðhjónunum.Tara Sif

Stjarna dagsins

Morguninn fyrir brúðkaupið klæddust vinkonur Töru bleikum sloppum í stíl og hjartalaga sólgleraugum, Tara stóð út úr hópnum eins og sannkölluð starna, klædd hvítu korselett og silkislopp. Myndirnar af hópnum minna einna helst á atriði úr bíómynd.

Sannkallaðar skvísur!Tara Sif
Brúðkaupsdagurinn byrjaði vel hjá Töru og vinkonum.Tara Sif

Bónorð á toppi Kistufells

Hjónin trúlofaði sig í ársbyrjun 2022. Elfar bauð Töru í óvænt þyrluflug sem endaði með bónorði á toppi Kistufells á Esjunni við sólsetrið, gerist varla rómantískara. Fimm mánuðum síðar giftu þau sig í Las Vegas þar sem þau voru stödd með vinafólki.


Tengdar fréttir

Tara Sif fékk bónorð á Kistufelli við sólsetur

Dansarinn og fasteignasalinn Tara Sif Birgisdóttir fékk óvænt bónorð á toppi Kistufells á Esjunni á dögunum. Sambýlismaður hennar, lögfræðingurinn Elfar Elí Schweitz Jakobsson, fór með hana í óvænt þyrluflug sem endaði á bónorði við sólsetrið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.