Lífið

Emilíana Torrini syngur og Yoko Ono býður fría siglingu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Friðarsúlan verður tendruð í 17. sinn næstkomandi mánudag.
Friðarsúlan verður tendruð í 17. sinn næstkomandi mánudag. Getty

Kveikt verður á Friðarsúlunni í Viðey í 17. sinn mánudaginn, 9. október klukkan 20. Boðað er til friðsælrar athafnar en 9. október er fæðingardagur Johns Lennon. Friðarsúlan varpa ljósi upp í himininn til 8. desember sem er dánardagur hans.

Yoko Ono, ekkja Lennon, býður upp á fríar siglingar út í Viðey þar sem tónlistarkonan Emilíana Torrini er meðal þeirra sem koma fram. Sömuleiðis parið Helgi Jónsson og Tina Dickow.

Listasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur og fleiri halda úti dagskrá í Viðey sem hefst kl. 17:45 og stendur til kl. 21:30.

Listasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur og fleiri halda úti dagskrá sem hefst kl. 17:45 og stendur til kl. 21:00.

Kl. 17:45 - Ganga á vegum Listasafns Reykjavíkur um verk Richard Serra og Yoko Ono.

Kl. 18:00 - Söguganga á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur.

Kl. 18:45 - Ganga á vegum Listasafns Reykjavíkur um verk Richard Serra og Yoko Ono.

Kl. 19:00 - Söguganga á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur.

Dagskrá í Viðey

Kl. 19:40: Emilíana Torrini og vinir flytja tónlist við Friðarsúluna. Auk Emilíönu eru valinkunnir tónlistarmenn þau Pétur Ben, Helgi Jónsson, Markéta Irglová og Tina Dickow.

Kl. 19:58: Dagur B Eggertsson, borgarstjóri flytur ávarp.

Kl. 20:00: Friðarsúlan tendruð undir laginu Imagine eftir John Lennon og Yoko Ono.

Fyrsta ferja eftir tendrun Friðarsúlunnar siglir frá Viðey klukkan 20:30. Strætó verður með ferðir gegn gjaldi frá Skarfabakka að Hlemmi frá klukkan 20:40 og þar til lokið verður að flytja gesti úr Viðey.

Fríar siglingar í boði Yoko Ono

Yoko Ono býður upp á fríar siglingar yfir sundið. Siglt verður frá Skarfabakka frá kl. 17.30 til kl. 19.30. Athugið að vegna mikillar aðsóknar undanfarin ár þarf að bóka miða fyrirfram, en aðeins 5 manns geta bókað sig á sama miða.

Panta miða í ferju.

Strætóferðir verða frá Hlemmi að Skarfabakka á hálftíma fresti. Fyrsti vagn fer frá Hlemmi kl. 17:30 og ekið verður til kl. 19:00. Farþegar þurfa að borga almennt fargjald.

Tákn um baráttu fyrir heimsfriði

Friðarsúlan eða Imagine Peace Tower er útilistaverk eftir Yoko Ono sem var reist í Viðey árið 2007 til að heiðra minningu Johns Lennons.

Friðarsúlan er tendruð árlega á fæðingardegi Lennons þann 9. október og lýsir til 8. desember sem er dánardagur hans. Listaverkið er tákn fyrir baráttu Ono og Lennons fyrir heimsfriði. Friðarsúlan, er í formi óskabrunns en á hana eru grafin orðin „hugsa sér frið“ á 24 tungumálum en enska heitið er vísun í lagið „Imagine“ eftir John Lennon.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.