Tónlist

Sumarlag fyrir veturinn frá GusGus og Vök

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Margrét Rán er fjölhæf söngkona en hún syngur bæði í hljómsveitinni Vök og GusGus.
Margrét Rán er fjölhæf söngkona en hún syngur bæði í hljómsveitinni Vök og GusGus. Dóra Dúna

Íslensku hljómsveitirnar GusGus og Vök voru að sameina krafta sína við útgáfu á laginu When We Sing.

Margrét Rán Magnúsdóttir er söngkona í báðum hljómsveitum og lýsir hún laginu sem sumarlagi fyrir veturinn. 

Lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM957 fyrr í dag. 

Lagið Skína með Patrik og Luigi situr enn í fyrsta sæti Íslenska listans á FM og Peggy Gou er komin í annað sæti listans með lagið (It Goes Like) Nanana

Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á milli klukkan 14:00 og 16:00 á FM957.

Lög Íslenska listans:

Íslenski listinn á Spotify: 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.