Lífið

„Ég fer afar þakklát inn í óvissuna með dass af kvíða“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Gerða hefur haldið úti einu vinsælasta námskeiði World Class.
Gerða hefur haldið úti einu vinsælasta námskeiði World Class. Gerða

Íþróttafrömuðurinn Gerður, þekkt sem Gerða-In Shape eða Jane Fonda Íslands, hefur ákveðið að hætta þjálfun á námskeiðinu, In Shape, í Worlds Class í nóvember. Námskeiðin hafa notið gríðarlegra vinsælda síðastliðin ár, sérstaklega hjá samfélagsmiðlastjörnum landsins.

Gerða greinir frá tímamótunum í einlægri færslu á samfélagsmiðlum þar sem lýsir blendnum tilfinningum í kjölfar ákvörðunarinnar.

„Það er ekki auðvelt að stíga til hliðar þegar ótrúlega vel gengur og finnast maður í leiðinni vera bregðast fólkinu í kringum sig, en hvenær er rétti tíminn? Ég fékk fyrir stuttu tíma í aðgerð í byrjun des að láta laga á mér stórt bil á kviðnum eftir meðgöngu sem ég hef látið sitja á hakanum of lengi svo það verður fyrsta skrefið,“ segir Gerða sem er þriggja barna móðir.

Spennt fyrir framtíðinni

Hún segist eiga sér marga drauma og spennt að sjá hvert lífið leiðir hana. 

„Ég fer afar þakklát inní óvissuna með dass af kvíða en treysti á sjálfan mig að það bíði mín eitthvað spennandi,“ segir Gerður sem hefur hrundið af stað nokkurst konar dans-eróbik æði á meðal íslenskra kvenna.

Innblástur við gerð námskeiðsins fékk Gerða frá stjörnuþjálfaranum Tracey Anderson.

„Ég heillaðist mikið af hennar nálgun og vildi byggja námskeiðið á því að hugsa út fyrir kassann og nýta allan þann grunn sem ég hef. Ég blanda mínum hugmyndum af nýjum æfingum við ákveðinn grunn og legg mikla áherslu á góða tónlist. Það er mikilvægt að þjálfa hugann og samhæfinguna í leiðinni. Tímarnir enda svo alltaf á því að við dönsum úr okkur hrokann við indjánatónlist með lokuð augun og leggjumst svo niður í slökun í lokin til að taka inn orkuna sem við erum búnar að búa til,“ sagði Gerða í samtali við Vísi árið 2020.

🫵🏻💪🏻






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.