Mál varnarmálaráðherrans fyrrverandi fellt niður Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 1. nóvember 2023 14:45 Claus Hjort Frederiksen á blaðamannafundi sem varnarmálaráðherra Danmerkur á vegum NATO í Eistlandi árið 2017. EPA/Valda Kalnina Saksóknari í Danmörku hefur ákveðið að fella niður mál gegn fyrrverandi varnarmálaráðherra landsins, Claus Hjort Frederiksen, sem ákærður var fyrir að hafa lekið ríkisleyndarmálum sem varða þjóðaröryggi.
Í fréttatilkynningu frá embætti saksóknara kemur fram að hæstiréttur Danmerkur hafi neitað beiðni um að réttarhöldin færu fram fyrir luktum dyrum. Embættið hafi því ekki séð sér fært um að halda málinu áfram þar sem sönnunargögn í málinu varði þjóðaröryggi. Málið snýr að því að árið 2020 staðfesti Frederiksen í viðtali við Weekendavisen og fleiri fjölmiðla að leyniþjónusta danska hersins, FE, hafi unnið með bandarísku þjóðaröryggisstofnuninni, NSA, að njósnum í gegnum ljósleiðara. Claus Hjort hefur ávallt neitað sök í málinu. Hann lét af þingmennsku í lok síðasta árs og missti þar með friðhelgi. Hefði hann enn setið á þingi hefði þingheimur þurft að greiða sérstaklega atkvæði um hvort ætti að ákæra hann. Hinn 75 ára gamli Claus Hjort var varnarmálaráðherra Danmerkur árin 2016 til 2019. Áður hafði hann gegnt embætti fjármálaráðherra árin 2009 til 2011 og aftur frá 2015 til 2016. Hann var þingmaður frá 2005 til 2022. Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins um málið kemur fram að hæstiréttur hafi hafnað beiðni saksóknara um að réttarhöld færu fram fyrir luktum dyrum. Þá hafi rétturinn auk þess ekki talið unnt að verða við því að halda gögnum málsins frá sakborningnum.
Danmörk Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira