Með tvo lítra af amfetamínbasa í farangrinum Atli Ísleifsson skrifar 2. nóvember 2023 15:04 Maðurinn játaði brot sín skýlaust. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa flutt tvö kíló af amfetamínbasa til landsins með flugi.
Maðurinn, Tomasz Lukasz Raepke, var ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa 25. ágúst 2023 staðið að innflutningi á samtals 2.030 millilítra af amfetamínbasa, með 46 til 59 prósenta styrkleika, með flugi til Keflavíkurflugvallar. Ekki er tekið fram hvaðan vélin kom til landsins. Maðurinn var með efnin falin í farangurstösku og sagði í ákæru að þau hafi verið ætluð til söludreifingar hér á landi. Hann játaði brot sín skýlaust, en sakavottorð lá ekki frammi í málinu og voru engin gögn um að maðurinn hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Ennfremur segir að af rannsóknargögnum málsins væri séð að maðurinn hafi verið eigandi efnisins eða skipuleggjandi innflutningsins. Hann hafi samþykkt að flytja efnin til landsins gegn greiðslu. Mat dómari sem svo að hæfileg refsing væri tveggja ára fangelsi, en til frádráttar kemur tími sem hann sat í gæsluvarðhaldi eftir handtöku við komuna til landsins. Auk þess að vera dæmdur í tveggja ára fangelsi var honum gert að greiða 1,1 milljón króna þóknun til skipaðs verjanda í málinu.
Dómsmál Fíkniefnabrot Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira