Frumsýning á Vísi: Líður stundum eins og líkaminn sé fangelsi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 3. nóvember 2023 08:01 Haraldur kemur sjálfur fram í myndbandinu við lagið og klippir það. Haraldur Þorleifsson gefur í dag út sína þriðju smáskífu og tónlistarmyndband undir listamannsnafninu Önnu Jónu Son við lagið Take These Bones. Myndbandið er frumsýnt hér að neðan á Vísi. „
Þetta er mjög persónulegt lag. Þetta er um sjálfan mig og veikindi mín,“ segir Haraldur í samtali við Vísi. Hann segist oft upplifa sem svo að líkami sinn sé fangelsi. Lagið er að finna á væntanlegri plötu hans The Radio Won't Let Me Sleep sem kemur út í maí á næsta ári. Tónlistarmaðurinn hyggst auk þess koma fram í Gamla Bíó á Iceland Airwaves á laugardagskvöld kl. 20:30. Klippa: Önnu Jónu Son - Take These Bones Líkaminn oft eins og óvinur „Ég er með vöðvarýrnunarsjúkdóm sem hefur þau áhrif á líkama minn að hann er smám saman að gefast upp og gera minna og minna fyrir mig. Ég er í allskonar vinnu að reyna að vinna mig út úr þessum þessu en mér finnst eins og hann sé svolítið mikið fangelsi,“ segir Haraldur. „Hann stoppar mig í að gera það sem mig langar til að gera. Hann er eiginlega óvinur minn. Þannig að lagið er um það og um þetta, að vera í líkama sem er að gefast upp.“ Finnst þér þú fá útrás fyrir þessar tilfinningar í gegnum tónlistarsköpunina? „Já, það hjálpar mér rosa mikið að hugsa svolítið djúpt um það hvernig mér líður og koma því svo frá mér. Það hjálpar rosalega mikið af því að það eru allskonar, eins og hjá öllum, allskonar hlutir sem við upplifum en við förum aldrei í gegnum það hvernig þeir láta okkur líða. Þannig mér finnst þetta sköpunarferli hjálpa mér að vinna mig í gegnum það. Það hefur verið mjög hjálplegt upp á það að gera.“ Auðveldara að berskjalda sig opinberlega Helmingurinn af lögunum á væntanlegri plötu Haraldar er saminn af honum á tíunda áratugnum en hinn helmingurinn nýlega. Þetta lag tilheyrir síðarnefndu lögunum en Haraldur hefur fengið fjölbreyttan hóp fólks til liðs við sig við gerð tónlistarmyndbandanna. Í þetta sinn var myndbandinu leikstýrt af brasilíska leikstjóranum Gregorio Graziosi og var helmingur þess tekinn upp í Brasilíu, en hinn á Íslandi. „Mér fannst eitthvað vanta þannig að ég fékk með mér góðan tökumann og við tókum upp hérna heima hjá mér. Síðan er ég svo erfiður í samstarfi að ég þurfti að klippa vídjóið allt sjálfur til þess að það væri allt eins og ég vildi,“ segir Haraldur hlæjandi. Áður hefur Haraldur frumsýnt tónlistarmyndbönd við tvö lög af plötunni. Það voru lögin Big Boy Boots og Almost over you en hann sagði við tilefnið við Vísi að um væri að ræða afar persónuleg lög. Finnst þér erfitt að berskjalda þig í hvert sinn sem það kemur nýtt lag? „Mér finnst það erfitt. Það sem er mjög skrítið og ég hef aldrei skilið sjálfur, er að mér finnst auðveldara að berskjalda mig opinberlega heldur en í samtali,“ segir Haraldur. „Ég hef haldið mikið af fyrirlestrum og ég tala bara mjög opinskátt og segi miklu meira en ég myndi gera en ef ég væri að tala bara við einhvern, meira að segja einhvern sem mér þykir vænt um, maður á mann. Það er mjög skrítið. Mér finnst auðveldara að koma hlutunum frá mér, ef ég fæ að pakka þeim saman og setja þá bara út, heldur en að vera að vinna þá í samstarfi.“
Tónlist Mest lesið Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Lífið Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga rifja upp gamla takta í Draumahöllinni Bíó og sjónvarp Hraðfréttir verða Hlaðfréttir Lífið Krakkatían: Eyðimerkur, býflugur og kjólar Lífið Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Bíó og sjónvarp Eins og að setja bensín á díselbíl Heilsa Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Khalid kemur út úr skápnum Lífið Fleiri fréttir Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Daði Freyr tekur stefnuna til Íslands eftir áratug úti Fred again í sal en ekki á sviði: „Orðrómur sem við höfðum enga stjórn á“ „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi „Enginn þekkir mig og ég þekki engan, sem mér finnst þægilegt“ Laufey fagnaði með Oliviu Rodrigo og Chappell Roan Tileinkar lagið Grindvíkingum „Það hefur aldrei verið neinn ótti“ „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ „Þetta er saga af villigötum“ „Enginn að fara að hringja í mig að fyrra bragði“ Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Space Odyssey opnar á nýjum stað Dr. Gunni spyr hvort það sé ekki bara búið að vera gaman Afhjúpað á hvaða dögum böndin spila á Airwaves Sjá meira