Deila kostnaði vegna dagdvalar fyrir heimilislausa Lovísa Arnardóttir skrifar 20. nóvember 2023 13:00 Sigurbjörg segir Samhjálp þekkja hópinn vel. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu munu öll deila kostnaði vegna dagdvalarinnar. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ætla að taka þátt í rekstri dagdvalar fyrir heimilislausa yfir köldustu vetrarmánuðina. Dagdvölin verður rekin í húsnæði Samhjálpar og hefur velferðarráð Reykjavíkurborgar þegar samþykkt að koma rekstrinum.
Kostnaður vegna dagdvalarinnar er í heildina metinn á 5,2 milljónir og að tryggja opnun hennar frá klukkan 14 til 16.30 alla daga yfir köldustu vetrarmánuðina. Gistiskýlin eru opin frá klukkan 17 til tíu á morgnana þannig fólk getur leitað í dagdvölina á meðan þar er lokað yfir daginn. Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs, sagði fyrir helgi að Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) yrði boðið að taka þátt gegn hlutdeild í kostnaði. Sigurbjörg Fjölnisdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs hjá Mosfellsbæ og formaður samráðshóps velferðarsvið á höfuðborgarsvæðinu sem starfar í umboði SSH, segir að gert sé ráð fyrir því að kostnaður vegna dagdvalarinnar deilist á öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. „Við vissum af því að það væri á leiðinni tillaga frá Samhjálp um opnun á dagsetri þessa köldustu mánuði á deginum til fyrir þennan hóp. Samhjálp er að fara inn í þetta verkefni þekkjandi hópinn okkar ágætlega,“ segir Sigurbjörg og að sveitarfélögin vilji vera með í verkefninu. „Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu vilja sannarlega taka þátt í þessu og erum búin að ræða þetta í hópi velferðarsviða á höfuðborgarsvæðinu. Sveitarfélögin eru mjög jákvæð að taka þátt í þessu verkefni.“ Flestir í Kópavogi Samkvæmt úttekt SSH frá því í mars á þessu ári um heimilislausa í sveitarfélögunum utan Reykjavíkur voru 76 heimilislausir í sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu, utan Reykjavíkur. Rúmur helmingur eða 55 prósent, voru skráð í Kópavogi, 24 prósent í Hafnarfirði, 14 prósent í Garðabæ og sjö prósent í Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi. Mikill meirihluti eru karlmenn, eða 76 prósent og langflestir íslenskir ríkisborgarar. Flestir voru á aldursbilinu 21 til 40 ára. Í skýrslunni var meðal annars lagt til að opnað yrði dagsetur fyrir heimilislausa og að samtökin ættu að koma að því verkefni. Fjallað er um það í skýrslunni að samkvæmt úttekt Reykjavíkur frá árinu 2021 voru 301 sagðir heimilislausir en af þeim aðeins 120 skráðir í þjónustu Reykjavíkurborgar. Mikil þörf síðasta vetur Sigurbjörg sagði það ekki hafa rætt meðal hópsins hvort þau verði með einhverja fasta viðveru félagsráðgjafa eins og REykjavíkurborg sér fram á, en að þau séu opin fyrir því að ræða það ef þörf er á. Hún segir að með dagdvölinni sé verið að mæta þörf sem kom upp síðasta vetur. Þá þurfti að virkja neyðaráætlun 21 sinni og halda neyðarskýlum opnum allan sólarhringinn vegna mikils kulda. Gistiskýlin eru allajafna opin frá klukkan 17 til tíu á morgnana. „Við sjáum alveg að það kom vetur í fyrra þar sem reyndi svo sannarlega á þetta og þá sáum við þörfina fyrir að vera með eitthvað úrræði yfir daginn þegar köldustu dagarnir eru þá og ég tel þetta gott skref fyrir hópinn sem þarf sannarlega á þessu að halda.“ Hún segir það til skoðunar að opna varanlegra úrræði, dagsetur, fyrir þennan hóp. „Sveitarfélögin, eða velferðarsviðin, eru búin að fjalla um það og það er sannarlega verið að skoða það, að horfa á varanlegra úrræði, eins og dagsetur sem er til lengri tíma,“ segir Sigurbjörg að lokum.
Málefni heimilislausra Reykjavík Hafnarfjörður Seltjarnarnes Garðabær Kópavogur Mosfellsbær Félagsmál Heilbrigðismál Tengdar fréttir Sólarhringsopnun í neyðarskýlum vegna fimbulkulda Sólarhringsopnun verður í neyðarskýlum Reykjavíkurborgar um helgina vegna veðurs. Mikill kuldi er í kortunum og frost nær tveggja staða tölu í Reykjavík samkvæmt spám. 12. janúar 2023 17:18 Ekki viss um að heimilislausir hafi ekki vitað af opnun skýla Aldrei kom annað til greina en að halda neyðarskýlum borgarinnar fyrir heimilislausa opnum í óveðri sem gerði um helgina, að sögn formanns borgarráðs. Hann segir leitt ef upplýsingar um opnunartíma skýlanna hafi ekki komist til skila en efast um að heimlislausir hafi ekki vitað af honum. 19. desember 2022 10:15 Heimilislausir á Granda fengu snemmbúna jólagjöf á óveðurshelgi Heimilislaus maður segir að jólin hafi komið snemma um helgina í neyðarskýlinu á Granda. Eftir að notendur þess sendu út neyðarkall hafi samfélagið tekið sig til og gefið mönnunum rúmar hundrað þúsund krónur, eitthvað sem þeir hafa ekki upplifað oft áður. 18. desember 2022 18:47 „Þetta er lífshættulegt ástand“ Heimilislaus karlmaður á Granda segir Reykjavíkurborg hafa ætlað að henda fólki út úr gistiskýli á Granda í snjóþungri og ískaldri borginni. Gistiskýli eru alla jafna lokuð á milli tíu og fimm á daginn. Reykjavíkurborg hafði þó opið í sólarhring í gær vegna kuldans og sagði að staðan yrði áfram metin. 17. desember 2022 12:06 Óvenjulegt kuldaskeið hefur víða gríðarleg áhrif Heimilislaus maður vonar að borgin hafi neyðarskýli fyrir heimilislausa opin allan sólarhringinn meðan kuldakastið sem nú er varir. Borgin hefur virkjað neyðaráætlun og ætlar að minnsta kosti hafa skýlin þannig opin á morgun. Ískuldinn sem nú ríkir kemur líka afar illa niður á smáfuglum. 15. desember 2022 20:31 Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira
Sólarhringsopnun í neyðarskýlum vegna fimbulkulda Sólarhringsopnun verður í neyðarskýlum Reykjavíkurborgar um helgina vegna veðurs. Mikill kuldi er í kortunum og frost nær tveggja staða tölu í Reykjavík samkvæmt spám. 12. janúar 2023 17:18
Ekki viss um að heimilislausir hafi ekki vitað af opnun skýla Aldrei kom annað til greina en að halda neyðarskýlum borgarinnar fyrir heimilislausa opnum í óveðri sem gerði um helgina, að sögn formanns borgarráðs. Hann segir leitt ef upplýsingar um opnunartíma skýlanna hafi ekki komist til skila en efast um að heimlislausir hafi ekki vitað af honum. 19. desember 2022 10:15
Heimilislausir á Granda fengu snemmbúna jólagjöf á óveðurshelgi Heimilislaus maður segir að jólin hafi komið snemma um helgina í neyðarskýlinu á Granda. Eftir að notendur þess sendu út neyðarkall hafi samfélagið tekið sig til og gefið mönnunum rúmar hundrað þúsund krónur, eitthvað sem þeir hafa ekki upplifað oft áður. 18. desember 2022 18:47
„Þetta er lífshættulegt ástand“ Heimilislaus karlmaður á Granda segir Reykjavíkurborg hafa ætlað að henda fólki út úr gistiskýli á Granda í snjóþungri og ískaldri borginni. Gistiskýli eru alla jafna lokuð á milli tíu og fimm á daginn. Reykjavíkurborg hafði þó opið í sólarhring í gær vegna kuldans og sagði að staðan yrði áfram metin. 17. desember 2022 12:06
Óvenjulegt kuldaskeið hefur víða gríðarleg áhrif Heimilislaus maður vonar að borgin hafi neyðarskýli fyrir heimilislausa opin allan sólarhringinn meðan kuldakastið sem nú er varir. Borgin hefur virkjað neyðaráætlun og ætlar að minnsta kosti hafa skýlin þannig opin á morgun. Ískuldinn sem nú ríkir kemur líka afar illa niður á smáfuglum. 15. desember 2022 20:31