Ætla til Ólafsfjarðar að skoða vettvang manndrápsins Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. desember 2023 10:22 Frá vettvangi á Ólafsfirði í október í fyrra. Vísir Aðalmeðferð hófst í morgun í manndrápsmálinu á Ólafsfirði. Steinþór Einarsson er ákærður fyrir að hafa orðið Tómasi Waagfjörð að bana í október í fyrra. Steinþór ber fyrir sig neyðarvörn og segir Tómas hafa fyrst ráðist á sig með stóran hníf í hönd.
Það var aðfaranótt 3. október 2022 sem Tómas mætti í íbúð í fjölbýlishúsi á Ólafsfirði þar sem Steinþór var gestkomandi. Kona Tómasar var í íbúðinni en þar hafði hún dvalið eftir rifrildi þeirra hjóna. Konan er ekki lengur til frásagnar um það sem gerðist í húsinu á Ólafsfirði umrædda nótt því hún er látin. Óljóst er hvaða áhrif andlátið hefur á framvindu málsins en hún hefur gefið skýrslu um málið við rannsókn lögreglu á málinu. Bíltúr til Ólafsfjarðar Aðalmeðferðin hófst klukkan 9:15 í morgun í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Til stendur að gera hlé á aðalmeðferðinni í dag og halda sem leið liggur til Ólafsfjarðar. Þar var málið sviðsett við rannsókn lögreglu í nóvember í fyrra og nú ætlar dómari að sjá aðstæður á vettvangi. Saksóknari, verjandi og ákærði verða með í för. Tómas var úrskurðaður látinn á vettvangi umrædda nótt þegar lögreglu bar að garði. Fjórir voru handteknir í fyrstu og þrjú úrskurðuð í gæsluvarðhald. Tveimur var fljótlega sleppt, húsráðanda og eiginkonu Tómasar. Steinþóri var svo sleppt eftir um mánuð í varðhaldi. Í ákæru á hendur Steinþóri segir að hann hafi svipt Tómas lífi með því að stinga hann tvisvar sinnum í vinstri síðu með hnífi, með þeim afleiðingum að ytri mjaðmarslagæð fór í sundur og olli umfangsmiklu blóðtapi sem leiddi til dauða Tómasar. Þess er krafist að Steinþór verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist fyrir hönd tveggja ólögráða barna Tómasar að Steinþór verði dæmdur til greiðslu sex milljóna króna miskabóta hvoru um sig og skaðabætur upp á 6,6 milljónir króna annars vegar og 4,4 milljóna hins vegar. Fljótlega farið að rífast Í greinargerð verjanda Steinþórs er atvikum lýst með þeim hætti að Tómas hafi komið íbúðina til að sækja konu sína. Tómas hafi komið pollrólegur inn og reynt að fá konuna heim með sér, en hún þá sagt að hún væri heima hjá sér og ætlaði ekki með honum. Fljótlega upp úr því hafi Steinþór að þreytast á Tómasi og sagt við hann að konan hefði þegar svarað honum og að hann skyldi hypja sig heim til sín. Fljótlega upp úr því hafi Steinþór og Tómas farið að rífast, Tómas hafið að hreyta leiðindum í Steinþór; reynt að reita hann til reiði, sem honum hafi tekist á endanum. „Ákærði henti í áttina til hins látna Tómasar Waagfjörð sólgleraugum sem hann hafði á höfðinu, sem greinilega varð til þess til að hinn látni Tómas Waagfjörð gekk í átt til ákærða mjög hratt, dró upp hníf sem ákærði hafði ekki tekið eftir. Ákærði hafði ekki staðið upp þegar hinn látni stakk hann í andlitið. Ákærði hrinti hinum látna út í horn eldhússins. Þá stakk hinn látni ákærða í lærið, og öskraði ákærði hvort hinn látni Tómas Waagfjörð hafi verið að stinga hann og ýtti aftur hendi hans frá sér til hins látna og féll um leið á hann,“ segir í greinargerðinni. Því næst hafi Steinþór náð að snúa baki við Tómasi, krækja hægri hendi hans undir hægri handakrika og grípa utan um hnífsblaðið með hægri hendi þangað til Tómas missti mátt og féll niður, en þá um leið hafi Steinþór fallið fram fyrir sig, lagt hnífinn frá sér í nærliggjandi blómapott og skriðið inn á baðherbergi. Ljóst sé að hinn látni Tómas Waagfjörð hafi ráðist á Steinþór vopnaður hnífi. Í átökunum hafi Steinþór hlotið stunguáverka í andlit en Tómas hafi stungið í gegnum kinn Steinþórs, og við þá stungu hafi endajaxl hans klofnað. Þá hafi hann einnig hlotið stunguáverka á læri og varnaráverka á höndum. Hin látni hafi verið með tvo áverka á vinstri síðu.
Manndráp á Ólafsfirði Fjallabyggð Dómsmál Tengdar fréttir Tómas hafi reynt að myrða Steinþór áður en hann lést Í greinargerð verjanda Steinþórs Einarssonar, sem ákærður hefur verið fyrir að myrða Tómas Waagfjörð á Ólafsfirði í október í fyrra, segir að ótvírætt sé að Tómas hafi fyrst lagt til Steinþórs með stórum hnífi. 21. nóvember 2023 21:01 Manndrápið á Ólafsfirði: Steinþór hafi stungið Tómas tvisvar Steinþór Einarsson, 37 ára gamall karlmaður, hefur verið ákærður fyrir manndráp, með því að hafa stungið Tómas Waagfjörð, 47 ára, til bana á Ólafsfirði í október í fyrra. 22. september 2023 09:27 Einn ákærður fyrir manndráp á Ólafsfirði Karlmaður hefur verið ákærður fyrir manndráp á Ólafsfirði í október síðastliðnum. Fjögur höfðu stöðu sakbornings í málinu. 21. september 2023 12:16 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Fleiri fréttir BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar Sjá meira
Tómas hafi reynt að myrða Steinþór áður en hann lést Í greinargerð verjanda Steinþórs Einarssonar, sem ákærður hefur verið fyrir að myrða Tómas Waagfjörð á Ólafsfirði í október í fyrra, segir að ótvírætt sé að Tómas hafi fyrst lagt til Steinþórs með stórum hnífi. 21. nóvember 2023 21:01
Manndrápið á Ólafsfirði: Steinþór hafi stungið Tómas tvisvar Steinþór Einarsson, 37 ára gamall karlmaður, hefur verið ákærður fyrir manndráp, með því að hafa stungið Tómas Waagfjörð, 47 ára, til bana á Ólafsfirði í október í fyrra. 22. september 2023 09:27
Einn ákærður fyrir manndráp á Ólafsfirði Karlmaður hefur verið ákærður fyrir manndráp á Ólafsfirði í október síðastliðnum. Fjögur höfðu stöðu sakbornings í málinu. 21. september 2023 12:16