Lífið

Förðunardrottning á lausu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Heiður Ósk er eigandi Reykjavík Makeup School og snyrtivörumerkisins Chilly in June.
Heiður Ósk er eigandi Reykjavík Makeup School og snyrtivörumerkisins Chilly in June. Skjáskot

Heiður Ósk Eggertsdóttir, förðunarfræðingur og eigandi Reykjavík Makeup School, hefur bæst í hóp glæsilegra einhleypra kvenna.

Nýverið slitnaði upp úr sambandi Heiðar og knattspyrnukappans Steven Lennon eftir níu ára samband. Saman eiga þau einn dreng. 

Heiður Ósk er einn færasti förðunarfræðingur landsins og hefur komið víða við í faginu. Árið 2022 festi hún og Ingunn Sigurðardóttir förðunarfræðingur, kaup á Reykjavík Makeup School sem útskrifar fjöldann allan af förðunarfræðingum árlega. 

Nýverið gáfu þær út förðunarlínuna Chili In June sem þær hönnuðu frá grunni, framleiddar á Ítalíu.

Auk þess héldu þær úti förðunarþáttunum, Snyrtiborðið með HI beauty, sem sýndir voru á Lífinu á Vísi. Í þáttunum gáfu þær góð ráð tengd förðun og húðumhirðu.

Í þættinum hér að neðan sýnir Heiður Ósk hvernig hægt er að láta förðun endast allan daginn.


Tengdar fréttir

Keyptu Reykjavík Makeup School

Förðunarfræðingarnir Ingunn Sigurðardóttir og Heiður Ósk Eggertsdóttir hafa tekið yfir rekstur Reykjavík Makeup School að fullu en þær komu upphaflega inn í rekstur hans sem meðeigendur 2020.

Stærstu trendin árið 2022 að mati HI beauty

Við fengum Heiði Ósk og Ingunni Sig í HI beauty til að spá fyrir um þau trend sem verði mest áberandi í hári, förðun og snyrtivörum á þessu ári. Við gefum þeim orðið






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.