Með ráðstöfunartekjum er átt við þá upphæð sem fólk á eftir af launum sínum þegar búið er að draga frá gjöld til hins opinbera.
Stefán og Nathalia eiga saman þrjú börn, eru gift og búa í húsi í Breiðholtinu. Aftur á móti eru útgjöld þeirra tæplega 1,4 milljónir króna á mánuði. Þar kom í ljós að heildarskuldarstaða þeirra er rúmlega 107 milljónir þar sem húsnæðislán er í miklum meirihluta.
Í þættinum í gærkvöldi var síðan farið yfir það hvernig gekk að spara og taka til í bókhaldinu á fyrsta mánuðinum.
Þeim tókst að lækka útgjöldin umtalsvert og þóttu standa sig vel. Þrátt fyrir það bættust við tvær greiðsludreifingar á umræddu mánaðartímabili. Við nánari skoðun kom í ljós að hjónin voru með 26 greiðsludreifingar í gangi og því fylgja miklir vextir.
Hér að neðan má sjá brot úr þættinum.
Í þáttunum Viltu finna milljón er fylgst með þremur pörum og hvernig þau geta tekið til í heimilisbókhaldinu yfir fimm mánaða tímabil.
Viltu finna milljón eru í umsjón Hrefnu Björk Sverrisdóttur og Arnars Þórs Ólafssonar. Í þáttunum keppast pör og fjölskyldur við það að taka fjármálin í gegn.