Lífið

Hugi og Unnur fögnuðu ástinni á Tenerife

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Hugi og Unnur hafa birt af sér myndir á samfélagsmiðlinum Instagram.
Hugi og Unnur hafa birt af sér myndir á samfélagsmiðlinum Instagram.

Fjölmiðlamaðurinn Hugi Halldórsson og Unnur Helgadóttir, hlaðvarpsstjarna og mannauðsstjóri í Seðlabankanum, eru nýjasta par landsins. Þau hafa notið lífsins saman undanfarið í sólinni á Tenerife.

Þetta má sjá á samfélagsmiðlinum Instagram. Þar hafa þau birt myndir af sér saman umkringd pálmatrjám, að sjálfsögðu með sólgleraugu. Parið hefur undanfarin ár gert það gott í sitthvoru lagi.

Unnur starfar eins og áður segir hjá Seðlabankanum. Samhliða því er hún með eitt fárra hlaðvarpa landsins um mannauðsmál, hlaðvarpið Á mannauðsmáli. Hugi er öllu betur þekktur en margir muna eftir honum sem Ofur-Huga í skemmtiþáttunum 70 mínútur.

Undanfarið hefur Hugi verið með samnefnda hlaðvarpsþætti auk Sigmars Vilhjálmssonar vinar síns, sem betur er þekktur sem Simmi Vill. Þar hefur hann rætt einkalíf sitt á opinskáan hátt en hann greindi þar frá því í maí í fyrra að hann væri orðinn einhleypur. Áður hafði hann verið með Ástrósu Signýjardóttur verkefnastjóra í sextán ár.


Tengdar fréttir

Tímamót hjá Huga og Ásdísi Rögnu

Ásdís Ragna Valdimarsdóttir og Hugi Halldórsson hafa verið ráðin til Samkaupa. Ásdís hefur tekið við stöðu markaðsstjóra Kjör- og Krambúðanna og Hugi hefur tekið við stöðu viðskiptastjóra vildarkerfis Samkaupa. Þetta kemur fram í tilkynningu til fjölmiðla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.