Tónlist

Ítalski píanistinn Maurizio Pollini látinn

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Maurizio
Maurizio Getty/VIncenzo Lombardo

Margrómaði píanistinn Maurizio Pollini lést í gær 23. mars 82 ára að aldri. Tilkynning barst í gær frá óperuhúsinu í Mílanó, La Scala, þar sem hann var tíður flytjandi. Pollini hefur heillað alþjóð með píanóleik sínum í rúmlega sextíu ár. Hann naut mikillar virðingar annarra tónlistarmanna.

Maurizio Pollini var fjölhæfur flytjandi og flutti hann verk í mörgum stílum eftir ótal tónskáld. Hvað stílinn hans varðar þótti hann mikill fullkomnunarsinni og spilaði hann allt kristaltært og skýrt, án óþarfa skreytinga. Slík nálgun féll ekki í kram allra, en sumum gagnrýnendum þótti spilamennskan ópersónuleg og tilfinningasnauð. Öðrum fannst nálgunin stórkostleg. Lesa má frekar um ævistörf Pollini til dæmis í þessari grein Washington Post.

Víkingur Heiðar minntist píanistans á Facebook í gær. Þar rekur hann skemmtilega hvernig deilt var um ágæti píanistans á æskuheimili hans, faðir hans hafi verið hrifinn en ekki móðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.