Lífið

Þorði loks á 22, gekk að Felix og sagði hæ

Stefán Árni Pálsson skrifar
Baldur Þórhallsson ætlar sér að verða næsti forseti Íslands.
Baldur Þórhallsson ætlar sér að verða næsti forseti Íslands.

Stjórnmálafræðiprófessorinn Baldur Þórhallsson vill verða næsti forseti Íslands en hann og Felix Bergsson hafa eftir mikla umhugsun með fjölskyldunni tekið þessa ákvörðun.

Sindri Sindrason hitti Baldur í Íslandi í dag í opinni dagskrá á Stöð 2 gærkvöldi og fékk að vita hvernig forseti hann vill vera. Baldur er fæddur á Selfossi og er Sunnlendingur og er alinn upp í Rangárvallasýslu.

Afi Baldurs var þar bóndi og fór hann ungur að taka þátt í sveitastörfum á bóndabæ afa síns.

„Þegar ég var síðan þrettán ára þá veikist af minn og ég tók einfaldlega við búskapnum. Ári seinna keypti ég kindurnar og var með þetta þar til að ég fór í menntaskóla,“ segir Baldur og þá spurði Sindri: „Er þetta ekki lygasaga?“ og Baldur svaraði um hæl: „Þetta er engin lygasaga.“

Baldur og Felix á góðri stundu á sínum tíma.

Baldur er giftur Felix Bergssyni og þeir sáu fyrst hvorn annan á bókasafni Samtakanna 78.

„Við þorðum ekki fyrir okkar litla líf að tala við hvorn annan í þrjú skipti sem við hittumst þar. Við vorum svo feimnir eitthvað. Sátum oft við sama borð og gátum ekki litið á hvorn annan, en vissum vel af hvor öðrum. Þarna var ég nýkominn út úr skápnum en Felix hafði verið út úr skápnum í fjögur ár. Svo þetta þriðja kvöld heyri ég að Felix er að fara á skemmtistaðinn 22, sem var þá skemmtistaður samkynhneigðra og ég hafði aldrei fyrir mitt litla líf þorað að fara inn á,“ segir Baldur og heldur áfram.

„Ég fór á eftir honum, sé að hann stendur við barinn og ég labbaði beint að honum og sagði hæ. Þá hófst samtal sem hefur staðið yfir síðan þá.“

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.