Lífið

Vítalía og Arnar Grant í kossaflensi

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
437283959_636367885333816_1171175483267424112_n
Vítalía Lazareva

Lífið leikur við þau Vítalíu Lazareva og Arnar Grant þrátt fyrir stormasama byrjun á sambandi þeirra. Vítalía birti myndband í gær af parinu á Instagram þar sem þau eru í innilegu kossaflensi og hún brosti sínu breiðasta. 

Líklega hafa fáir gengið í gegnum eins margt og þau Arnar og Vítalía. Ástarsamband þeirra hefur undanfarin ár verið á allra vörum og ekki síst þegar illa gekk. 

Þannig var greint frá því í október 2022 að þau ætluðu sér að flytja inn saman. Þó kom babb í bátinn og sagði Vítalía í samtali við Vísi að Arnar vildi bara vera með henni þegar enginn vissi af því. Það hefur hinsvegar greinilega breyst og ljóst að lífið leikur við parið.

Þau hafa oft og mörgum sinnum sést saman á opinberum vettvangi, síðast á Te og kaffi í Smáralind í mars. Vítalía greindi frá því þegar hún átti 26 ára afmæli í nóvember að hún hefði öðlast mikla innri ró með árunum og að hún væri þakklát fyrir líf sitt.

Vítalía varð þjóðþekkt eftir að hún greindi frá því á Instagram í október 2021 að hún hefði orðið fyrir kynferðisofbeldi þriggja manna í heitum potti í sumarbústað í september 2020 þar sem hún var stödd með líkamsræktarþjálfaranum Arnari Grant. Það var svo í janúar árið 2022 sem hún ræddi málið í Eigin konum, hlaðvarpi Eddu Falak, og sagði sína hlið á málinu. Málið var fellt niður sem og kæra þremenninganna gegn Vítalíu fyrir meinta fjárkúgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.