Grunur um manndráp á Akureyri Árni Sæberg skrifar 22. apríl 2024 12:20 Konan fannst látin í húsi í Naustahverfinu á Akureyri. Já.is Lögreglan á Akureyri hefur til rannsóknar andlát konu sem fannst látin í íbúðarhúsi á Akureyri í nótt. Einn hefur verið verið handtekinn vegna málsins. Í tilkynningu frá lögreglu segir að grunur sé um að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Þar segir að lögregla hafi verið kölluð til klukkan 04:30 í nótt. Fyrstu lögreglumönnum sem komu á vettvang hafi verið vísað á meðvitundarlausa konu í íbúðinni og endurlífgunartilraunir hafist þegar í stað. Læknir og sjúkraflutningamenn hafi einnig komið á vettvang en tilraunir til endurlífgunar hafi ekki borið árangur og konan verið úrskurðuð látin á vettvangi. Einn handtekinn Í íbúðinni hafi verið annar einstaklingur og hann hafi verið handtekinn í þágu rannsóknar málsins og sé með réttarstöðu sakbornings. Krafa um gæsluvarðhald yfir honum verði lögð fram fyrir dómi í dag. Rannsókn málsins sé í höndum lögreglunnar á Norðurlandi eystra, sem njóti aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Rannsókn málsins sé á frumstigi og mikil vinna framundan. Vegna rannsóknarhagsmuna sé ekki hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Í tilkynningu frá lögreglu segir að grunur sé um að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Þar segir að lögregla hafi verið kölluð til klukkan 04:30 í nótt. Fyrstu lögreglumönnum sem komu á vettvang hafi verið vísað á meðvitundarlausa konu í íbúðinni og endurlífgunartilraunir hafist þegar í stað. Læknir og sjúkraflutningamenn hafi einnig komið á vettvang en tilraunir til endurlífgunar hafi ekki borið árangur og konan verið úrskurðuð látin á vettvangi. Einn handtekinn Í íbúðinni hafi verið annar einstaklingur og hann hafi verið handtekinn í þágu rannsóknar málsins og sé með réttarstöðu sakbornings. Krafa um gæsluvarðhald yfir honum verði lögð fram fyrir dómi í dag. Rannsókn málsins sé í höndum lögreglunnar á Norðurlandi eystra, sem njóti aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Rannsókn málsins sé á frumstigi og mikil vinna framundan. Vegna rannsóknarhagsmuna sé ekki hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu. Fréttin hefur verið uppfærð. Veistu meira um málið? Fréttastofa tekur við öllum ábendingum og myndum á netfangið ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið? Fréttastofa tekur við öllum ábendingum og myndum á netfangið ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Akureyri Lögreglumál Manndráp í Naustahverfi á Akureyri Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Sjá meira