Lífið

Greta Salóme og Elvar eiga von á sínu öðru barni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Greta Salóme og Elvar Þór gengu í hjónaband í maí í í fyrra.
Greta Salóme og Elvar Þór gengu í hjónaband í maí í í fyrra. Instagram

Hjónin Greta Salóme Stefánsdóttir tónlistarkona og Elvar Þór Karlsson eiga von á sínu öðru barni saman. Greta tilkynnti gleðitíðindin á samfélagsmiðlum.

„Við getum ekki beðið eftir haustinu og litla krílinu sem ætlar að bætast í fjölskylduna. Það sem við erum þakklát og spennt,“skrifar Greta við fallegt myndskeið af fjölskyldunni á Instagram. Fyrir eiga hjónin einn dreng, Bjart Elí, sem fæddist í nóvember árið 2022, fjórum vikum fyrir settan dag.

Greta og Elvar kynntust þegar hann þjálfaði hana í líkamsræktarþjálfuninni Boot Camp. Þau trúlofuðu sig síðan í janúar árið 2018 og gengu í hjónaband þann 29 apríl árið 2023 í Mosfellskirkju.

Greta, sem m.a. hefur leikið á fiðlu með Sinfóníuhljómsveit Íslands, hefur tvisvar verið fulltrúi Íslendinga í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, árin 2012 og 2016 og fylgdi Elvar unnustu sinni út í bæði skiptin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.