Lífið

Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Búist er við um 25 til 30 þúsund manns á hátíðina í ár.
Búist er við um 25 til 30 þúsund manns á hátíðina í ár. vísir/vilhelm

Víkingar um allan heim eru ýmist komnir eða á leið til landsins til að sækja hina árlegu Víkingahátíð sem fer fram í Hafnarfirði um helgina. Lengst hefur fólk ferðast frá Ástralíu til að taka þátt í dagskrárhöldum.

Hátíðin fer fram á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Fjörið hefst klukkan ellefu á daginn og stendur fram á kvöld. Jökull Tandri Ámundason er jarl hjá Rimmugýgum víkingafélagi.

„Hjá okkur er hægt að upplifa og fylgjast með víkingabardaga sem er bæði lið á móti liði og maður á móti manni. Svo er hægt að fá að prófa hjá okkur bogfimi og axarkast, það er handverk á svæðinu sem hægt er að læra og góðir matvagnar þarna með okkur.“

Auk þess sem fólk getur spreytt sig í víkingaleikjum, hlustað á víkingatónlist, stigið vikivaka dans og fylgst með dönsku hirðfífli.

„Þar sem hann er að leika sér með eldbolta og hættulegasta ávöxt í heimi sem að hans sögn er eplið.“

Víkingatónlist mun óma um Víðistaðatún þar sem hátíðin fer fram.vísir/vilhelm

Um 25 þúsund manns sækja hátíðina árlega sem vekur athygli um allan heim enda mæta erlendir víkingar til landsins einungis til að sækja hátíðina.

„Það eru nokkrir sem eru að koma í sitt tuttugasta eða tuttugasta og fjórða skipti. Víkingar frá gjörvöllum Norðurlöndunum, Bretlandseyjum, Þýskalandi, Póllandi, Kanada og Bandaríkjunum. Svo höfum við verið svo heppin að eiga góða vini langt að, þeir koma alla leið frá Ástralíu til að sækja okkur.“

Fólk sæki í menningararfinn

Jökull segir menningararfinn laða fólk að.

„Það er svo gaman að geta rýnt aðeins inn í fortíðina, séð hvernig lifnaðarhættir eða fólk var á þessum tíma. Hvernig það bjó, klæddi sig og borðaði eða leysti úr rígum þess á milli, hvort sem það var í leik eða orrustu.“

Mikill metnaður er í klæðaburði.vísir/vilhelm

Hann hvetur alla til að kíkja við um helgina en hátíðinni lýkur á þriðjudaginn.

„Aðgangseyrir er enginn og það eru allir velkomnir. Dagskráin gengur frá ellefu til sex og svo er eitthvað húllumhæ fram eftir.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.