Lífið

Nostalgía og glæ­nýr sumarsmellur

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Olafssynir_wide_highres

Aron Már Ólafsson, Aron Mola og Arnar Þór Ólafsson, stjórnendur hlaðvarpsins Ólafssynir í Undralandi og Egill Ploder Ottósson útvarpsmaður gáfu út nýtt lag á miðnætti. Lagið heitir 0 upp í 100 og lýsa þeir því sem einhvers konar samblöndu af country, dans og partý tónlist.

Jón Bjarni Þórðarson pródúseraði lagið en þremenningarnir sáu um laga- og textasmíð.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Arnar, Aron og Egill koma saman í lagasmíðar en þeir hafa áður unnið saman í 12:00 nefnd Verzlunarskóla Ísland árið 2013 og gáfu meðal annars hinn sívinsæla sumarsmell, Sumartíminn.

„Það kom ekkert annað til greina en að sameina krafta okkar þriggja, enda góðir saman og ekki okkar fyrsta rodeo ef svo má að orði komast. Svo í öðru lagi þá er þetta bara ógeðslega skemmtilegt ferli að gefa út lag. Maður hefur gert þetta nokkrum sinnum áður og ætli þetta sé ekki einhvers konar áhugamál hjá manni,“ segir Arnar í samtali við Vísi aðspurður um hvað hafi orðið til þess að þeir hafi ákveðið að gefa út lag saman.

Nýja smellinn má heyra í spilaranum hér að neðan:

Klippa: 0 upp í 100

Árið 2013 gáfu þeir félagar út lagið Sumartíminn sem má heyra í spilaranum hér að neðan.

Aron ætti að gera aðra hluti

Áður en lagið kom út ákvað Aron að leyfa félaga sínum og kollega, Jóhannesi Hauki Jóhannssyni leikara, að heyra lagið. Jóhannes var hins vegar ekki alveg tilbúinn til þess að hlusta á það þar sem Aron er tveggja barna faðir á fertugsaldri ætti að vera að gera aðra hluti í lífinu en að vera að gefa út lag.

Aron sýndi frá samtali þeirra á samfélagsmiðlinum TikTok á dögunum:

@aronmola Fór og leyfði Jóhannesi Hauki að hlusta á lagið á undan öllum… 0 upp í 100 droppar á föstudaginn. @Egill Ploder @Jón Bjarni @Auratal ♬ original sound - aronmola

Hægt er að hlusta á lagið 0 upp í 100 á öllum helstu streymisveitum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.