Lífið

Bankaforstjóri selur glæsi­hýsi í Laugar­dalnum

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku óskar nú eftir tilboðum í glæsihýsi sitt í Laugardalnum, en fasteignamatið hljóðar upp á 289 milljónir króna.
Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku óskar nú eftir tilboðum í glæsihýsi sitt í Laugardalnum, en fasteignamatið hljóðar upp á 289 milljónir króna. Vísir

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, hefur sett glæsilegt hús að Dyngjuvegi 2 í 104 Reykjavík á sölu. Húsið er 594 fermetra einbýlishús, þar af er 55 fermetra bílskúr með hjólageymslu. Húsið er staðsett á 1704 fermetra glæsilegri lóð með útsýni yfir Laugardalinn. Óskað er eftir tilboðum í eignina en fasteignamatið er 289.250.000 krónur.

Húsið er byggt á árunum 1950-55 fyrir Agnar Kofoed-Hansen og Björgu Kofoed Hansen. Húsið var upprunalega 358,0 fm. Teiknað af Gísla Halldórssyni.

Núverandi eigendur hafa átt húsið frá 2006 og gerðu þau gagngerar endurbætur á húsinu sem stóðu til ársloka 2011 þegar þau fluttu inn. Davíð Pitt teiknaði viðbætur við húsið (með samþykki Gísla Halldórssonar) Davíð teiknaði breytingar að innan, hannaði innréttingar og aðstoðaði við efnisval.

Sjá nánar á fasteignavef Vísis.

Hér er loftmynd af húsinu, sem er hægra megin fyrir miðju.Fasteignavefur
Innkeyrslan er rúmgóð og aðkoman huggulegFasteignavefur
Ekki amalegt þetta.Fasteignavefur
Flott vatnsból og gluggar.Fasteignavefur
Garðurinn er stór og huggulegurFasteignavefur
Flott vatnsból og gluggar.Fasteignavefur
Önnur loftmynd. Þetta er prýðilegt umhverfi.Fasteignavefur
Hugguleg forstofa.Fasteignavefur
Flott stofa með smekklegu fiskibeinaparketi.Fasteignavefur
Glæsileg stofa, og ekki skemmir útsýnið fyrir.Fasteignavefur
Eitthvað hafa þessir flottu stólar kostað. Georg Guðni á veggnum held ég, ekki viss. Verkið er amk flott.Fasteignavefur

Sjá fleiri myndir á fasteignavefnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.