Sterk sumarást í sveitinni kveikti áhugann á þýskunni Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 1. júlí 2024 11:31 Margrét Kristín eða Fabúla var að senda frá sér nýja tónlist. Hallur Karlsson „Textalega séð hef ég alltaf verið talsvert persónuleg,“ segir tónlistarkonan Margrét Kristín Sigurðardóttir sem notast við listamannsnafnið Fabúla. Blaðamaður ræddi við hana um listina en hún hefur verið virk í íslensku tónlistarlífi síðastliðna þrjá áratugi.
Þrjú lög á þremur tungumálum „Ég set gjarnan tilfinningar og upplifun í nýjan búning, jafnvel söguform. Textarnir mínir byggja því oftast á eigin upplifunum og glímum eða reynslu og tilvist annarra. Hvað hljóðheiminn varðar og tónsköpunina þá kemur innblásturinn frá allri þeirri tónlist sem ég hef hlustað á frá barnæsku. Allt býr þetta í undirmeðvitundinni, missterkt, en það er brunnur sem maður leitar ómeðvitað í og hefur frelsi til að vinna með að vild,“ segir Margrét en hún hefur hvað mest samið fyrir leikhús síðastliðin ár og sett upp tónleikhúsverk. „Undanfarna mánuði hef ég svo fókuserað meira á lagasmíðar óháð leikhúsinu og gaf nýverið út þrjár smáskífur en fleira er í bígerð.“ Hún var að senda frá sér þrjú ný lög sem eru öll á mismunandi tungumálum. „Ég hef gegnum tíðina aðallega samið á ensku og íslensku en eitt nýju laganna er hins vegar á norsku og annað á þýsku. Ég hef alltaf heillast að ólíkum tungumálum, ólíkum hreimum og mállýskum innan ólíkra tungumála, það tengist án efa tónlistar- og textaástríðunni. Tjáning, blæbrigði, hljómfall, orð og tónar heilla mig. Lagið En halv appelsin samdi ég uppi í fjöllum í Noregi ásamt dönskum lagahöfundi. Þetta er ástarlag sem hefst á spurningunum: „Má bjóða þér hálfa appelsínu - og má það vera appelsínan mín? Viltu sykur, viltu salt…. viltu bragða allt?“ Norska er jú mitt annað tungumál, þar sem ég á norskan mann og hálfnorsk börn og bjó nokkur ár í Noregi,“ segir Margrét en hún á dótturina Emblu Wigum sem er með þekktari áhrifavöldum Íslands og soninn Ágúst Wigum sem er leikari og fer meðal annars með hlutverk í kvikmyndinni Ljósbrot. Margrét leyfir sér að vera persónuleg í textasmíðinni og semur lög á ólíkum tungumálum.Saga Sig Sveitaást sautján ára innblástur „Þýska lagið er svo tökulag frá 1931 sem ég bara heillaðist að og varð að syngja og taka upp. Ég spila undir á gamla uppáhalds píanóið mitt, sem er frá svipuðum tíma og hefur svo mikla sál. Lagið heitir „Wenn ich mir was wünschen dürfte“ eða „Ef ég ætti eina ósk“ og kom út fyrst með Marlene Dietrich. Þetta er eina lagið sem ég hef gefið út á þýsku, enda nota ég þýskuna sjaldan en ég stúderaði hana aðeins í HÍ. Svo vann ég nú eitt sumar á sveitahóteli í Þýskalandi þegar ég var sautján ára og upplifði þar sterka sumarást. Þá komst þýskan kannski svolítið undir húðina. “ Margrét heillaðist að þýskunni eftir að hún eyddi sumri í Þýskalandi sautján ára.Janne Talstad Þriðja lagið sem Fabúla var að gefa út er svo á ensku og heitir Fading. „Það fjallar um upplifun mína af því að horfa upp á náinn aðstandanda glíma við „heilamistur“ en það er erfið glíma sem ófáir sem ná háum aldri þurfa að glíma við. Í þessu lagi set ég mig í spor manneskjunnar sem ég elska og legg henni orð í munn. Gunnar Kvaran sellósnillingur leikur á selló í þessu lagi. Það var mikil upplifun að spila með honum.“ Hér má hlusta á lagið Fading: Klippa: Fabúla - Fading Nánd við áheyrendur líklega það besta Margrét lifir og hrærist í tónlistinni og hefur tónlistin verið órjúfanlegur hluti af lífi hennar lengi. „Það að vinna við tónlist er svolítið eins og ólíkir kaflar eða árstíðir og það er erfitt að gera upp á milli þeirra, hver hefur sína töfra. Þegar hugmynd kviknar og texti og lag verður til er svolítið eins og vorið með sinn fiðring. Oftast koma orðin fyrst í mínu tilfelli, sem leiða svo tónana og ég er alltaf með blýant og bók við rúmið til að skrifa niður hugmyndir sem geta fæðst á nóttunni. Svo þróast hugmyndin og lögin fæðast við píanóið. Útsetninga og upptökuferlið er næsta tímabil og það getur bæði verið snúið og óendanlega gefandi. Að fá inn annað tónlistarfólk til að segja söguna með sér með sinni nálgun og túlkun. Einstakir tónar frá meðleikendum geta stútfyllt hjartað af þakklæti. Svo kemur að útgáfuferlinu, sem er kannski meira: „Jæja, nú þarf bara að bretta upp ermarnar“ tímabil (best að taka upp kartöflurnar) og svo að lokum kemur að lifandi flutningi tónlistarinnar, fjórðu árstíðinni, með tilheyrandi nánd við hlustendur. Þar er maður svolítið kominn á áfangastað eða kominn „heim“, því tilgangurinn með að segja söguna var jú að snerta annað fólk. Það er kannski það allra besta. Þegar þú upplifir nándina og samtalið við áheyrendur,“ segir Margrét að lokum. Margrét segir að nándin og samtalið við áheyrendur sé besti hlutinn af tónlistinni.Saga Sig Hér má hlusta á Fabúlu á streymisveitunni Spotify.
Tónlist Ástin og lífið Menning Mest lesið Fötlunin ekki stærsta áfallið heldur veikindin sem fylgdu Lífið Mótmæltu keppninni í fyrra en ætla sér alla leið í ár Lífið Þetta eru keppendur Söngvakeppninnar 2025 Lífið Kenndi sjálfum sér um í tuttugu ár Lífið Ragna Sigurðardóttir á von á barni Lífið Fréttatía vikunnar: Bólfélagar, fjársvik og flóð Lífið Ryan Reynolds og Taylor Swift hafi beitt hann þrýstingi Lífið Illa bruggaðar Guðaveigar Gagnrýni Troðfullt hús og standandi lófaklapp Menning Erling og Sigríður selja húsið eftir átján ár Lífið Fleiri fréttir Frumsýning á Vísi: Ferðalag um næturhimininn með Kára Egils Troðfylltu Iðnó: „Þetta kom okkur alveg í opna skjöldu“ Bestu vinir sem fá að vinna við það sem þeir elska Bríet, Valdimar og Elín Hall meðal hæstu styrkhafa Segir Gunna hafa verið skipstjórann í brúnni Una Torfa og Jón Jónsson frumfluttu lag í beinni Frumsýning á Vísi: Hálka lífsins með Nýdönsk Nýdönsk á toppnum 2024 Herra Hnetusmjör með stærsta lag ársins Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Live in a fishbowl: Stórvinir X-ins í Brain Police rifu þakið af húsinu Live in a fishbowl: Alvöru harðkjarnapönk í boði I adapt Hélt tryllt tónlistarteiti og eignaðist svo tvíbura Breyta japönskum dúett í íslenskt jólalag Landslið tónlistarmanna mætti þegar Maggi Eiríks var hylltur Fjölbreyttur hópur tónlistarfólks tilnefndur til Kraumsverðlauna Live in a fishbowl: Spacestation spilaði tónlist fyrir „fallegt fólk“ Uppáhalds jólalögin: Munkadjamm og jólaleg sambandsslit Sjá meira