Lífið

Tinna Brá og Ari Eld­járn færðu fertugsafmælið út á sjó

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Tinna Brá og Ari Eldjárn kunna að halda partý. 
Tinna Brá og Ari Eldjárn kunna að halda partý. 

Tinna Brá Baldvinsdóttir helt upp á fertugsafmæli sitt á laugardag. Fyrst á Reykja­vík Röst, áður en gestum boðið út á höfn þar sem snekkja beið þeirra. Tinna Brá þakkar kærasta sínum Ara Eldjárn fyrir að gera afmælið ógleymanlegt. 

Greint var frá því í apríl á síðasta ári að Tinna og Ari hefðu fundið ástina og væru nýtt par. 

Í færslu á Facebook þakkar Tinna Brá Ara fyrir að halda geggjað partí með sér.

„Trúi því varla að við höfum náð að rigga upp salnum á 1 klst og færa svo fjörið yfir í bát, með geggjaðri skúðgöngu. Ég er búin að horfa milljón sinnum á fallega lagið sem þú samdir til mín,“ skrifar Tinna Brá.

„Takk allir sem hjálpuðu til og gerðu kvöldið ógleymanlegt! Takk fyrir komuna, takk fyrir fjörið, takk fyrir samveruna, takk fyrir gjafirnar og takk fyrir mig.“

Ari hefur getið gott orð af sér sem uppistandari frá árinu 2009. Framan af kom hann fram með uppistandshópnum Mið-Íslandi en undanfarið hefur hann haldið uppistandssýningar víða um heim með góðum árangri. Tinna hefur verið í fyrirtækja- og verslunarrekstri síðastliðin tíu ár og er með BA gráðu í arkitektúr. Bæði eiga þau tvö börn úr fyrri samböndum. Tinna Brá birti eftirfarandi myndir á Facebook:

Ari marseraði fremstur í flokki.
Mikið fjör á bryggjunni.
Júlía Margrét, Jafet Máni, Kamilla Einarsdóttir og Rúnar Gíslason.
Vinkonur.
Tinna Brá ásamt fjölskyldunni. Frá vinstri: Baldvin Indriðason, Guðrún Benediktsdóttir og Baldvin I. E. Baldvinsson.
Ari og Tinna ásamt gestum.v
Ástfangin.
Tómas Steindórsson og Hrafnhildur Lúthersdóttir létu sig ekki vanta.
Tengdaforeldrarnir Unnur Ólafsdóttir og Þórarinn Eldjárn ásamt syninum Halldóri Eldjárn.
Tinna Brá ásamt Arnheiði Örnu, Magneu Sif, Hildigunni og Guðrúnu Þorgerði.
Á bátnum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.