„Við erum að klæða vegi sem eiga að vera malbikaðir“ Lovísa Arnardóttir skrifar 3. júlí 2024 10:33 Björk hefur sérhæft sig í efnaverkfræði biks. Hún segir að það þurfi að malbika meira um allt land. Klæðingu eigi bara að nota á umferðarminni vegi. Aðsend og Vísir/Vilhelm Björk Úlfarsdóttir, umhverfis, gæða og nýsköpunarstjóri hjá Colas malbikunarfyrirtæki og formaður Félags kvenna í vegagerð segir klæðingu á vegi ekki alslæma en að malbikið sé betra. Klæðingu eigi að nota á umferðarminni vegi. Hún segir Vegagerðina ekki anna eftirspurn og viðhaldsskuldina aðeins aukast þegar hugsað er í skammtímalausnum.
Björk fór yfir stöðuna í vegagerð og muninn á klæðingu og malbiki í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún segist hafa fallið fyrir vegagerð þegar hún fékk starf á rannsóknarstofu Colas á meðan hún var í háskólanámi í efnafræði og efnaverkfræði. Björk hefur lært mikið um bik sem er eitt grunnefni í malbiki. Hún segir ekki rétt að tala um tjöru þegar talað er um bik. „Ég hef sérstöðu í að vita margt um bik en svo átti ég kunningjakonur sem vissu miklu meira um steinefni og þá gátum við eflt tengslin,“ segir Björk og þessi tengsl hafi nýst henni afar vel þegar hana vantar einhverja sérþekkingu sem hún hefur ekki sjálf. Björk segir hræðilegt og hvimleitt að um allt land séu bikblæðingar. „Veðursviptingar geta leitt til blæðinga. Þegar það fer úr miklum kulda í hita,“ segir hún og að fáir geri sér ekki grein fyrir því að þótt svo að lofthiti sé aðeins um 18 gráður þá sé veghitinn kannski á sama tíma um 40 gráður eða meiri. Sólin sé uppi allan sólarhringinn á Íslandi og því nái það ekki að kólna almennilega. Björk segir malbikið ekki blæða sjálft. Það gerist yfirleitt ekki nema það sé galli í útlögn eða blöndun. „Það eru þessar klæðingar sem eru rosalega mikið hér á landi. Við erum að klæða vegi sem eiga að vera malbikaðir,“ segir Björk og útskýrir muninn á klæðningu og malbiki. Munur á malbiki og klæðingu Klæðing sé þegar bindiefnum er sprautað yfir. Það sé bland af biki og lífolíu. Eftir það er steinefnum dreift yfir. Malbik sé sérstök uppskrift sem sé blöndum í malbikunarstöð. Björk segir að klæðingar séu víða notaðir í Evrópu. Svíþjóð, Danmörku og Írlandi. Þetta sé ekki séríslenskt. Klæðingin sé hugsuð fyrir umferðarminni vegi en svo hafi umferðin verið að aukast. Björk segir klæðinguna um þrisvar til fimm sinnum ódýrara en að malbika. Það sé því spurning um að klæða fjóra kílómetra eða malbika einn. Klæðingin dugi miklu skemur og þoli minni umferðarþunga. Það sé því kannski ekki ódýrara til lengri tíma litið að klæða en Vegagerðin hafi aðeins úr ákveðnu fjármagni að moða hverju sinni. Það sé ekki færi á að gera mikla langtímasýn úr því. „Það vantar pening inn í vegakerfið, það er staðreynd,“ segir Björk og að það sé mikið vandamál hversu lítil langtímahugsun sé í vegakerfinu. Það séu fleiri ferðamenn að aka um vegina en einnig meiri þungaflutningar því landflutningar hafi tekið við af skipaflutningum. „Það er svo mikið álag á klæðingarvegina sem þeir eru ekki hannaðir fyrir. En það eru ekki til peningar til að malbika.“ Björk segir að þegar holur eða för hafa myndast í malbik sé best að fræsa og malbika upp á nýtt. En eitt af vandamálunum sé að það sé verið að bregðast svo seint við. Vegagerðin sé viðhaldsskuld því það vanti peninga. „Við erum að laga vegina of seint. Þegar við fræsum upp eru hjólförin komin niður í næsta lag af malbiki og þá er enn líklegra að þau komi fljótlega aftur. Það að vera í svona viðhaldsskuld kostar mikla peninga til langs tíma.“ Steypan lengi að þorna Hvað varðar steypta vegi segir Björk þá endast lengur. Kaflinn við Esjumela sem sé oft nefndur í því samhengi sé orðinn þreyttur og mikið hljóð þegar maður ekur hann. Steypa sé dýrari og taki langan tíma að þorna. „Það væri gaman að fylgjast með þjóðinni ef Reykjanesvegur yrði lokaður í mánuð á meðan steypan er að þorna. Malbikið tekur aðeins nokkra klukkutíma.“ Hefði Björk ótakmarkað fjármagn til að moða úr í vegavinnu myndi hún byrja á því að malbika til Akureyrar. Eftir það myndi hún malbika allt Suðurlandið þar sem ferðamennirnir eru mest á ferðinni og svo þyrfti að fara í átak á Vestfjörðum og Austurlandi. „Það þarf að malbika meira um allt land.“ Björk segir það lifandi að starfa í vegagerð. Það sé skemmtilegt að sjá götu lokað og svo nokkrum tímum síðar sé kominn nýr vegur. Hún segist ekki eiga neinn uppáhalds veg en þyki skemmtilegt að aka Reykjanesbrautina. „Maður sér þróunina í vegunum og mismunandi malbikstýpur sem hafa verið síðustu ár.“
Vegagerð Samgöngur Umferðaröryggi Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Rekstur hins opinbera Byggðamál Bítið Tengdar fréttir Hættulegar bikblæðingar víða á vegum landsins Vegfaranda í Ölfusi blöskraði aðkoman á veginum milli Hveragerðis og Þorlákshöfn í gær þar sem bikblæðingar eru áberandi. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir ljóst að ná verði betri tökum á vandamálinu. 17. júní 2024 20:19 Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Tuttugu og tveir erlendir ferðamenn í rútunni sem valt við Öxnadal í gær. Fimm voru fluttir með þyrlu og sjúkraflugvélum á Landspítalann og þar á gjörgæsludeild. Tveimur er haldið sofandi í öndunarvél en eru sagðir vera með stöðug lífsmörk. 15. júní 2024 11:52 Of snemmt að kenna bikblæðingum um Vegagerðin varaði við bikblæðingum á veginum um Öxnadalsheiði í dag. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir að ekki megi gefa sér þær forsendur að blæðingarnar hafi valdið slysinu. 14. júní 2024 22:59 Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Fleiri fréttir „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Sjá meira
Hættulegar bikblæðingar víða á vegum landsins Vegfaranda í Ölfusi blöskraði aðkoman á veginum milli Hveragerðis og Þorlákshöfn í gær þar sem bikblæðingar eru áberandi. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir ljóst að ná verði betri tökum á vandamálinu. 17. júní 2024 20:19
Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Tuttugu og tveir erlendir ferðamenn í rútunni sem valt við Öxnadal í gær. Fimm voru fluttir með þyrlu og sjúkraflugvélum á Landspítalann og þar á gjörgæsludeild. Tveimur er haldið sofandi í öndunarvél en eru sagðir vera með stöðug lífsmörk. 15. júní 2024 11:52
Of snemmt að kenna bikblæðingum um Vegagerðin varaði við bikblæðingum á veginum um Öxnadalsheiði í dag. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir að ekki megi gefa sér þær forsendur að blæðingarnar hafi valdið slysinu. 14. júní 2024 22:59