Ljóst er að aðdáendur tónlistarkonunnar mögnuðu sem vann til Grammy verðlauna í vetur fyrir plötu sína Bewitched er ekki bundin við aldur eða kyn. Þannig heyrði fréttastofa af þrettán ára strák sem tók á sprett út í Melabúð á fimmtudagskvöld þegar hann fékk veður af því að Laufey væri að versla.
Eftirminnilegt augnablik fyrir ungan aðdáanda
Laufey reyndist vera með Lin Wei móður sinni og lét sig ekki muna um að stilla sér upp á mynd með aðdáandanum unga. Eftirminnilegt augnablik fyrir ungan aðdáanda en Laufey hefur náð til unga fólksins á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem hún hefur slegið í geng.

Svipað var uppi á teningnum í gær þegar Laufey spígsporaði um miðbæ Reykjavíkur og var endurtekið stöðvuð og beðin um myndatöku af fólki á öllum aldri. Laufey sýndi fylgjendum sínum á Instagram frá göngutúr sínum og þar á meðal leikskólanum sem hún gekk í sem barn, Laufásborg.
Jós lofi yfir Laufeyju
Tónlistarkonan skellti sér út á lífið í gærkvöldi og var einn viðkomustaðurinn Röntgen við Hverfisgötu þar sem sjá mátti þekkt andlit á borð við Emmsjé Gauta og Steinda Jr.

Þar var líka Eyjólfur Sverrisson fyrrverandi landsliðsfyrirliði og landsliðsþjálfari í knattspyrnu. Skipti engum toga því Eyjólfur virtist að sögn fulltrúa Vísis á staðnum svo spenntur yfir Laufeyju að hann gat ekki hætt að ausa hana lofi.
Eftirminnilegt kvöld fyrir Eyjólf sem vafalítið skellir Laufeyju á fóninn í dag.