Lífið

Logi Geirs og Inga Tinna eignuðust prinsessu

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Prinsessan og foreldrarnir.
Prinsessan og foreldrarnir. Instagram

Inga Tinna Sigurðardóttir forstjóri Dineout, og Logi Geirsson handboltakappi hafa eignast dóttur. Stúlkan fæddist 25. júlí síðastliðinn, en parið greindi frá þessu á Instagram í dag í hjartnæmri færslu.

„Prinsessan er mætt og á einu augabragði 25.07.2024 stækkaði allt í okkar lífi. Fjölskyldan, tilgangurinn, hjartað og ástin. Gætum ekki verið hamingjusamari,“ segja þau á Instagram.

„Fyrsti andardrátturinn þinn tók okkar í burtu og það var eins og tíminn stæði í stað. Yndisleg stund sem við geymum í hjörtum okkar alla tíð.“

Inga Tinna og Logi fóru að stinga saman nefjum í upphafi ársins 2023, en um er að ræða sannkallað stjörnupar. Athafnakonan Inga Tinna er stofnandi og framkvæmdastjóri Dineout, og Logi Geirs er fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta og einkaþjálfari.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.