Lífið

Benni þjálfari fann ástina hjá Jónbjörgu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Benni og Jónbjörg eru nýjasta par landsins.
Benni og Jónbjörg eru nýjasta par landsins.

Körfuboltaþjálfarinn Benedikt Rúnar Guðmundsson og markaðssérfræðingurinn Jónbjörg Erla Kristjánsdóttir eru nýjasta par landsins. Parið sviptir hulunni af sambandinu á samfélagsmiðlum.

Benedikt er þjálfari Tindastóls í úrvalsdeild karla. Hann er einn af þekktari körfuboltaþjálfurum landsins, þjálfað landsliðið og fjölmörg félagslið. Jónbjörg starfar hjá ensku auglýsingastofunni EssenceMedia sem hefur aðsetur í London. Þar hefur hún meðal annars sérhæft sig í stafrænni markaðssetningu.

Ljóst að þarna er á ferðinni sannkallað ofurpar. Jónbjörg er fædd árið 1996 en Benedikt árið 1972. 24 ár skilja parið að en ástin hefur aldrei spurt um stétt né stöðu og því síður aldur.

Benedikt hefur í gegnum tíðina verið óhræddur við að feta nýjar slóðir til þess að finna ástina. Hann tók til að mynda þátt í raunveruleikaþáttunum Fyrsta blikinu á Stöð 2 árið 2021.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.