Rannsaka innbrot og mögulega vatnsmengun á herstöð í Þýskalandi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 15. ágúst 2024 06:49 Herstöðinni var lokað um tíma í gær. AP/Roberto Pfeil Hermálayfirvöld í Þýskalandi hafa atvik til rannsóknar þar sem óprúttnir aðilar eru grunaðir um að hafa brotist inn á Köln-Wahn herstöðina og mengað neysluvatnið.
Talsmaður hersins staðfestir að varnarmálanefnd þingsins hafi verið tilkynnt um atvikið en ekki liggur fyrir hvort viðkomandi tókst ætlunarverk sitt eða ekki. Um er að ræða nokkuð stóra herstöð nálægt Köln-Bonn flugvellinum en grundsemdir eru sagðar hafa vaknað á þriðjudag um að einn eða fleiri aðilar hefðu brotist inn á stöðina og átt við vatnsleiðslur. Einn sást flýja herstöðina eftir að nemar á vatnsleiðslum fóru í gang og í kjölfarið fannst gat á girðingu umhverfis stöðina. Herstöðin var innsigluð um tíma á miðvikudag og engum leyft að koma né fara. Talsmaður staðfesti að tilkynnt hefði verið um að eitthvað væri óeðlilegt við vatnið en vildi ekki tjá sig frekar. Hermönnum og öðrum á herstöðinni var ráðlagt frá því að drekka vatnið. Guardian greinir einnig frá því að maður hafi verið stöðvaður á þriðjudag þegar hann reyndi að komast inn á herstöð Atlantshafsbandalagsins fyrir utan bæinn Geilenkirchen. Málið er til rannsóknar en talsmaður neitaði því að viðkomandi stöð hefði verið lokað í kjölfarið. Herforinginn Ulrich Fonrobert, talsmaður heraflans í Norður Rín-Vestfalíu, segir tilvikin tekin alvarlega og að drykkjarvatnið á Köln-Wahn stöðinni sé til rannsóknar.
Þýskaland NATO Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira