Lífið

Draumadrengur Söndru og Hilmars kominn í heiminn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Sandra og Hilmar eignuðust sitt fyrsta barn í vikunni.
Sandra og Hilmar eignuðust sitt fyrsta barn í vikunni. Skjáskot

Hjónin og þjálfararnir Sandra Björg Helgadóttir og Hilmar Arnarson eignuðust dreng 24. september síðastliðinn. Um er að ræða þeirra fyrst barn saman.

„Halló heimur. Ólýsanleg hamingja og þakklæti að fá loksins að hitta fullkomna drauminn okkar,“ skrifuðu þau við sameinlega færslu á Instagram.

Þá birti Sandra aðra færslu með mynd af nýbökuðu foreldrunum ásamt hvítvoðungbyn á leiðinni heim af fæðingardeildinni: „Settur dagur í dag en litli prinsinn okkar ákvað að mæta aðeins fyrr og var svo innilega meira en velkominn.“

Draumur verður að veruleika

Sandra og Hilmar greindu frá óléttunni í apríl síðastliðnum á samfélagsmiðlum. Þar mátti sjá mynd af þeim hjónum á ströndinni í Malibu í Kaliforníu með sónarmynd í hönd.

Hjónin kynntust í námi í Háskóla Íslands og útskrifuðust bæði tvö sem Iðnaðarverkfræðingar árið 2014.

Þau létu pússa sig saman við hátíðlega athöfn í Háteigskirkju þann 22. júlí árið 2022 á blautum föstudegi. Veislan var stórglæsileg, haldin í veislusal Sjálands í Garðabæ þar sem gestum var boðið upp á alvöru partý.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.