Lífið

Fann­ey Dóra og Aron gáfu syninum nafn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Fanney Dóra og Aron eignuðust dreng í lok september.
Fanney Dóra og Aron eignuðust dreng í lok september. Skjáskot

Fanney Dóra Veigarsdóttir, förðurnarfræðingur og áhrifavaldur, og unnusti hennar Aron Ólafsson rafvirkjanemi nefndu son sinn um helgina. Drengurinn fékk nafnið Veigar Óli.

Parið greindi frá gleðifréttunum í færslu á Instagram. Um er að ræða þeirra annað barn en fyrir eiga þau hina þriggja ára gömlu Thalíu Guðrúnu. Veigar Óli kom hann í heiminn 23. september síðastliðinn.

Fanney tilkynnti að von væri á stækkun í fjölskyldunni í mars síðstliðnum. 

Við færsluna skrifaði hún: „Lífið heldur áfram að koma okkur á óvart.“

Parið byrjaði saman árið 2020 og trúlofaði sig í janúar 2023.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.