„Ekki þurrt auga í salnum“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 16. október 2024 07:02 Guðríður Gunnlaugsdóttir og Andri Jóns breyttu tvöföldu fertugsafmæli í brúðkaup síðasta laugardag. Thelma Arngríms „Við vissum svo sem að þetta yrði magnað en vá, það var bara ekki þurrt auga í salnum á þessu augnabliki,“ segir Guðríður Gunnlaugsdóttir. Hún og eiginmaður hennar Andri Jóns komu sínu nánasta fólki rækilega á óvart um helgina þegar tvöfalt fertugsafmæli þeirra breyttist óvænt í brúðkaup.
Gurrý, eins og hún er jafnan kölluð, og Andri reka saman bæði Barna- og Extraloppuna og hafa verið saman frá því þau voru rúmlega tvítug. Þau giftu sig upphaflega árið 2011 en ákváðu að endurnýja hjúskaparheitin með stæl. Blaðamaður ræddi við Gurrý um þennan ógleymanlega dag. Vinkona hjónanna gaf þau saman á laugardag.Thelma Arngríms Hvenær ákváðuð þið að endurnýja hjúskaparheitin? Við erum búin að skulda brúðkaupsveislu í einhvern tíma og fannst þetta frábært tækifæri til að bæta þessu inn í fertugsafmælis prógrammið. Þarna var allt okkar besta fólk samankomið og fullkomið tilefni til að skjóta þessu með. Andri bað mín á flugvellinum í Kastrup sumarið 2011 og við giftum okkur svo á pappírum í Ráðhúsinu í Kaupmannahöfn í október sama ár. Gurrý og Andri giftu sig upphaflega árið 2011 og hafa verið ástfangin í um sautján ár! Thelma Arngríms Hvað eruð þið búin að vera lengi saman og hvernig kynntust þið? Við erum búin að vera saman í tæp sautján ár en við kynntumst einmitt á gamla Apótekinu þegar það var skemmtistaður hér í den. Bæði nýkomin úr sambandi á þeim tíma og alls ekki að leita að neinu eins og það er svo oft. Hins vegar höfðum við alltaf vitað af hvort öðru, við vorum saman í grunnskóla í Hafnarfirðinum og því þess vegna sem við byrjuðum að spjalla þetta kvöld, til að rifja upp gamla tíma. Gurrý og Andri hafa þekkst úr æsku. Þegar leiðir þeirra lágu saman aftur voru þau ekki að leita að sambandi en örlögin gripu í taumana.Thelma Arngríms Var ekki erfitt að halda þessu leyndu og koma afmælisgestunum á óvart? Jú það var mjög erfitt, við sögðum ekki einu sinni börnum okkar frá þessu fyrr en nokkrum dögum áður. Mjög gaman hvað þessi óvænta uppákoma heppnaðist vel, það voru nokkrir sem vissu samt því maður þarf hjálp við að plana svona uppákomu, til að mynda var vinkona mín „presturinn“, vinur okkar veislustjórinn og önnur sem tók þetta allt upp á myndband. Hjónin fengu nokkra vini sína til að hjálpa til við brúðkaupið en annars vissi enginn af þessu.Thelma Arngríms Hvað stendur upp úr frá kvöldinu? Heyrðu þetta var svo magnað kvöld að það er erfitt að velja eitthvað eitt en brúðkaups „surprise-ið“ er klárlega það sem stendur upp úr. Við vissum svo sem að þetta yrði magnað en VÁ, það var bara ekki þurrt auga í salnum á þessu augnabliki. Ótrúlega fallegt hvað fólkið okkar lifði sig inn í þetta með okkur. Það verða nefnilega allir svo extra hamingjusamir á svona stundu og það skein í gegn þetta kvöld. Gleðin tók völdin í brúðkaupinu og væntumþykjan einkenndi loftið.Thelma Arngríms Hvernig gekk að velja brúðarkjólinn og varstu með fataskipti? Það var ekkert mál, ég fékk lánaðan kjól hjá vinkonu minni en hún aðstoðaði mig að hafa fataskipti í lítilli kompu í salnum. Það var smá bras að lauma sér þangað inn svo enginn sæi en þetta gekk smurt fyrir sig og tók um þrjár mín að fara í kjólinn, setja upp blómakrans í hárið og kippa brúðarvendinum með. Gurrý tókst að skipta yfir í brúðarklæðnað á þremur mínútum.Thelma Arngríms Lagið undir var líka svo tryllt en við spiluðum „Power of love“ með Celine Dion þegar ég labbaði inn með pabba. Ég náttúrulega elska Celine og hún bara varð að fá að vera partur af brúðkaupinu mínu. Voruð þið lengi að undirbúa partýið? Og eruð þið miklir kúrekaaðdáendur? Já erum búin að vera plana og skipuleggja í nokkra mánuði. Höfum lengi ætlað okkur að halda brúðkaupspartý en alltaf guggnað á síðustu stundu eða ekki fundist rétti tíminn eða staðurinn fyrir það. Svo bara gerist lífið og við allt í einu orðin fertug (samt alltaf 25 þú veist) þannig okkur fannst þetta vera besta lausnin, að slá þessu saman og fara bara „all in“ eins og sagt er. Gurrý og Andri umkringd góðum vinum og mikilli gleði. Þau ákváðu að kýla á brúðkaupsveisluna og fara alla leið með þetta.Thelma Arngríms Við vorum smá efins fyrst um að vera með þema, en það er bara alltaf aðeins skemmtilegra að vera með þema og því ákváðum við að slá til. Það var aldrei neinn vafi með hvert þemað yrði því Andri var náttúrulega klárlega kúreki í fyrra lífi og var líklega uppi á tímum villta vestursins en það er mikið um kántrítónlist á okkar heimili og það hefur klárlega smitast yfir á mig og stelpurnar okkar. Við fáum líka svolítið útrás fyrir þetta þegar við förum í veiði á sumrin, þá eru hattarnir og bolo-bindin tekin upp. Svo gáfum við Andri hvort öðru einmitt tryllta kúrekahatta í afmælisgjöf frá SigzonHats en hann gerir hatta frá grunni alveg eins og þú vilt hafa hann. Algjör snillingur! Andri var að sögn Gurrýjar kúreki í fyrra lífi og því var enginn vafi á því hvert þemað yrði.Thelma Arngríms Hin eina sanna Ragga Gísla tróð upp.Thelma Arngríms Vinir hjónanna tóku lagið.Thelma Arngríms Hattarnir að sjálfsögðu settir upp.Thelma Arngríms Falleg og einlæg ræðuhöld.Thelma Arngríms Andri í hópi glæsilegra kúrekakvenna!Aðsend Unnur María og Jóhann Kristinn klikkuðu ekki á þemanu.Aðsend Kúrekaþemað sló í gegn.Aðsend Andri var að sögn Gurrýjar kúreki í fyrra lífi og því var enginn vafi á því hvert þemað yrði.Thelma Arngríms Gurrý og Andri umkringd góðum vinum og mikilli gleði. Þau ákváðu að kýla á brúðkaupsveisluna og fara alla leið með þetta.Thelma Arngríms
Brúðkaup Ástin og lífið Tímamót Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Fleiri fréttir Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Sjá meira