Stöðluðu húsin frá Límtré Vírneti hafa slegið í gegn Límtré vírnet 1. nóvember 2024 11:31 Stöðluðu húsin frá Límtré vírnet koma í tveimur stærðum, 160 fm og 240 fm og eru byggð úr límtrésburðarvirki. Þau hafa slegið í gegn undanfarið ár enda íslensk framleiðsla á hagkvæmu verði. Stöðluðu húsin úr límtré og steinullareiningum frá Límtré Vírnet hafa slegið í gegn undanfarið ár enda íslensk framleiðsla á hagkvæmu verði. Þau eru helst notuð fyrir iðnaðar- og landbúnaðarhús og geymslur en möguleikarnir í nýtingu þeirra eru fjölmargir. „
Viðtökurnar hafa verið framar björtustu vonum,“ segir Hermann J. Ólafsson, hönnuður og ráðgjafi í byggingardeild Límtrés Vírnets. „Í raun má segja að stöðluðu húsin séu fyrir hvern sem er þótt þau henti auðvitað helst þeim aðilum sem hafa aðgang að stærri lóðum sem heimila skipulag þar sem þau falla vel inn, eins og t.d. hjá verktökum og bændum.“ „Það er um ár síðan við hófum að bjóða húsin sem heildarpakka til viðskiptavina en með því að móta svona staðlaða lausn getum við boðið upp á mun hagstæðari verð,“ segir Hermann J. Ólafsson, hönnuður og ráðgjafi í byggingardeild Límtrés Vírnets. Húsin koma í tveimur stærðum, 160 fm og 240 fm og eru byggð úr límtrésburðarvirki. „Þau eru klædd með steinullareiningum sem bæði einangra og klæða bygginguna á sama tíma. Húsunum fylgir iðnaðarhurð, tvær gönguhurðir og tveir gluggar ásamt festingum og efni sem þarf til að reisa bygginguna fljótt og örugglega.“ Að mestu unnið úr eigin framleiðsluvörum Húsin eru samsett úr nokkrum framleiðsluvörum Límtrés vírnets, t.d. límtré, steinullareiningum, stálfestingum og áfellum auk þess sem fyrirtækið flytur inn aðrar festingar og þéttiefni fyrir húsin. „Það er um ár síðan við hófum að bjóða húsin sem heildarpakka til viðskiptavina en með því að móta svona staðlaða lausn getum við boðið upp á mun hagstæðari verð.“ Steinullareiningar gegna hlutverki ytri klæðningar, einangrunar, og innra byrði bygginga. Pakkinn býður upp á allt frá teikningu að fullkláruðu húsi að sögn Hermanns, undanskildu efni í sökkul og plötu. „Það má því segja að svo gott sem allt ofan plötunnar komi frá okkur. Við framleiðum límtrésbitana og steinullareiningarnar í verksmiðju okkar á Flúðum. Steinullareiningarnar eru úr misþykkum steinullarkjörnum með stálplötum sitt hvorum megin á ullinni. Stálplöturnar eru 0,6 mm þykkar og bjóðum við þær í mörgum litum.“ Þéttiefnin og festingar, á borð við skrúfur og nagla, eru innflutt auk þess sem fyrirtækið flytur einnig inn iðnaðarhurðir í húsin og bjóða upp á uppsetningu þeirra. Húsunum fylgir iðnaðarhurð, tvær gönguhurðir og gluggar ásamt festingum og efni sem þarf til að reisa bygginguna fljótt og örugglega. Minna kolefnisspor „Það að geta boðið upp á íslenska framleiðslu skiptir miklu máli,“ segir Hermann og gefur Límtré Vírnet forskot á flesta keppinauta sína. „Sem dæmi má nefna að við notum að miklu leyti íslenska steinull í einingarnar. Það þýðir mun minna kolefnisspor en á þeim byggingarhlutum sem eru fluttir inn til landsins. Einnig má nefna að þegar kemur að frágangi húsanna þá erum við með áfellur sem eru beygðar í verksmiðju okkar, þ.e. áfellur kringum glugga og hurðir koma tilsniðnar í réttum lengdum þar sem við erum búnir að forklippa í horn o.fl. Því þarf ekki að sníða þær til á staðnum.“ Hægt er að velja um úrval lita á ytri og innri klæðningu og skapa þannig það útlit sem manni hugnast. Eru til taks á meðan uppsetningu stendur Mikil áhersla er lögð á góða þjónustu við viðskiptavina að sögn Hermann. „Sú þjónusta er mest í byrjun en við sköffum teikningar fyrir húsin, aðaluppdrætti, sökkulteikningar, teikningar fyrir burðarvirki og frágang á einingum. Síðan erum við til taks á meðan uppsetningu stendur. Við sjáum ekki um uppsetningu húsanna utan þess að bjóða upp á uppsetningu á iðnaðarhurðum en við erum með sérfræðinga í hurðauppsetningu á okkar vegum. Hins vegar höfum við góða reynslu af reynslumiklum aðilum sem hafa sett upp húsin undanfarin ár og getum því bent á nokkra slíka sé þess óskað.“ Hér er hægt að kynna sér stöðluðu húsin frekar. Nánari upplýsingar á veita sölu- og tæknimenn Límtrés Vírnets í netfanginu byggingar@limtrevirnet.is og í síma 412 5380.
Hús og heimili Atvinnurekendur Mest lesið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira