Hörður Ellert lætur reyna á dóm fyrir að nauðga stjúpdóttur sinni Árni Sæberg skrifar 1. nóvember 2024 12:02 Hæstiréttur tekur mál Harðar Ellerts fyrir. Vísir Hörður Ellert Ólafsson, frumkvöðull og ljósmyndari sem hlaut dóm í sumar fyrir að nauðga stjúpdóttur sinni ítrekað, fær áheyrn Hæstaréttar vegna málsins. Hann var sýknaður í héraði en sakfelldur í Landsrétti og á því rétt á áfrýjun.
Hörður Ellert var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur þáverandi sambýliskonu sinnar. Þegar stúlkan var níu til tólf ára braut hann margítrekað gegn henni, meðal annars með því að láta hana veita honum munnmök. Í dómi Landsréttar segir að Hörður Ellert, sem hefur í gegnum tíðina komið að stofnun og rekstri þónokkurra fyrirtækja, þar á meðal Inhouse, Nostra veitingahúss, Mótherja og Syndis, verið ákærður fyrir að hafa á árunum 2016 til 2019 í ótilgreindan fjölda skipta með ólögmætri nauðung haft við stúlkuna önnur kynferðismök en samræði með því að setja fingur inn í leggöng hennar, getnaðarlim sinn á milli læra hennar og viðhafa samfarahreyfingar, sleikja kynfæri hennar, nudda kynfæri hennar og fróa sér á meðan og í eitt skipti látið hana veita sér munnmök. Þá hafi hann sýnt stúlkunni klámmyndir og tekið myndir af kynfærum hennar í eitt skipti. Framburður stúlkunnar vó þungt Í ákvörðun Hæstaréttar um áfrýjunarleyfi segir að Landsréttur hafi tekið fram í úrlausn sinni að framburður stúlkunnar hefði frá upphafi verið skýr, stöðugur og án mótsagna um þau atriði sem skiptu máli við úrlausn málsins. Fengi framburður hennar stoð í framburði móður hennar og vinkvenna og væri metinn afar trúverðugur. Framburður Harðar Ellerts takmarkaða stoð í framburði vitna og gögnum málsins, sem hafi rýrt trúverðugleika hans og þar með sönnunargildi. „Taldi Landsréttur því ekki óvarlegt að leggja framburð brotaþola til grundvallar sakfellingar þrátt fyrir eindregna neitun leyfisbeiðanda.“ Lúti að grundavallaratriði réttarríkisins Hörður Ellert hafi í áfrýjunarbeiðni sinni fyrir það fyrsta vísað til ákvæðis laga um meðferð sakamála, sem mælir meðal annars til um að hafi ákærður maður verið sýknaður af ákæruefni í héraðsdómi en sakfelldur fyrir Landsrétti skuli verða við ósk ákærða, eða ákæruvaldsins honum til hagsbóta, um leyfi til áfrýjunar nema Hæstiréttur telji ljóst að áfrýjun muni ekki verða til þess að breyta dómi Landsréttar. Hann telji jafnframt að úrslit málsins kunni að hafa fordæmisgildi um hvort Landsréttur geti notast við það sönnunarmat og þá sönnunaraðferð sem beitt hafi verið. Álitaefni málsins lúti að því grundvallaratriði réttarríkisins að ekki megi dæma menn og refsa nema lögfull sönnun teljist fram komin sem ekki verði vefengd með skynsamlegum rökum. Í niðurstöðu Landsréttar um sönnun hafi ekki verið gætt þeirrar hlutlægni sem réttarfarsreglur geri ráð fyrir. Dómur Landsréttar sé því bersýnilega rangur efnislega. Þá felist í niðurstöðu Landsréttar frávik frá viðurkenndum sönnunarreglum. Loks varði málið gríðarlega mikilvæga hagsmuni Harðar Ellerts og grundvallarmannréttindi um að vera ekki saklaus dæmdur sekur. Einföld afgreiðsla Í niðurstöðu Hæstaréttar er vísað til ofangreinds ákvæðis, sem mælir fyrir um að verða skuli ósk ákærðs manns, sem sýknaður er af ákæruefni í héraðsdómi en sakfelldur fyrir Landsrétti, um leyfi til áfrýjunar nema Hæstiréttur telji ljóst að áfrýjun muni ekki verða til þess að breyta dómi Landsréttar. „Þar sem slíku verður ekki slegið föstu verður beiðnin samþykkt.“
Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Dómsmál Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kristrún með ávarp vegna atkvæðagreiðslunnar Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Sjá meira