Frumsýning á Audi Q6 e-tron lúxussportjeppanum Hekla 8. nóvember 2024 11:30 Hekla frumsýnir nýjan Audi Q6 e-tron lúxussportjeppann í sýningarsal Audi á morgun, laugardaginn 9. nóvember. Á sama tíma má skoða fjölbreytt úrval bíla frá Volkswagen, Skoda og GWM Ora. Á morgun, laugardaginn 9. nóvember, mun Hekla frumsýna nýjan Audi Q6 e-tron í sýningarsal Audi að Laugavegi 174, á milli kl. 12 og 16.
Hekla kynnir með stolti einn mest spennandi rafbílinn á markaðnum um helgina þegar Audi Q6 e-tron verður frumsýndur á Íslandi. Bíllinn sem kemur á nýjum undirvagni frá Audi er fjórhjóladrifinn og með 616 kílómetra drægni. Um er að ræða kaflaskil í hönnun frá Audi og eru miklar væntingar gerðar til bílsins af hálfu framleiðandans. Engu er til sparað þegar kemur að hönnun Audi Q6 en hönnun innra rýmisins er ný frá grunni og hvert einasta smáatriði innan sem utan bílsins hugsað til hins ýtrasta. Nýir margmiðlunarskjáir auka á upplifun ökumanns og farþega, en bíllinn kemur einnig með aukaskjá fyrir farþegasæti í framsæti bílsins. Kraftmikill rafmótor skilar frábærum aksturseiginleikum og quattro fjórhjóladrif sér til þess að bíllinn er kjörinn fyrir íslenskar veðuraðstæður. Þá býður hann upp á hraðhleðslu þar sem hægt er að hlaða frá tíu prósentum upp í áttatíu á 21 mínútu (í hámarkshleðslu, 270kW). Audi Q6 e-tron mun heilla hvar sem hann kemur og sýna að hann er verðug viðbót í fjölbreytta vörulínu Audi. Þessi lúxus sportjeppi fangar athyglina með framúrskarandi getu, framsækinni hönnun og stafrænu innra rými. Söluráðgjafar Audi taka vel á móti gestum á Laugaveginum og á sama tíma má skoða fjölbreytt úrval bíla frá Volkswagen, Skoda og GWM Ora. Björn Víglundsson er framkvæmdastjóri sölusviðs Heklu. „Það er alltaf stór stund þegar við tökum á móti nýjum meðlimum í fjölskylduna og koma Audi Q6 e-tron er þar engin undantekning,“ segir Björn Víglundsson, framkvæmdastjóri sölusviðs Heklu. „Bíllinn er virkilega vel heppnaður og frábærlega hannaður að innan sem utan, eins og Audi er einum lagið. Bíllinn býr yfir mikilli drægni, Quattro fjórhjóladrifi, frábærri fjöðrun og kraftmiklum rafmóturum. Nýtt og hátæknilegt mælaborð með allri nýjustu tækni setur þar punktinn yfir i-ið og gerir Audi Q6 að frábærum akstursbíl.“ Nánari upplýsingar á audi.is.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira