Sport

Missti stjórn á sér og gaf stig: „Veit að þetta er ekki mjög sænsk hegðun“

Sindri Sverrisson skrifar
Truls Möregardh er í hópi bestu borðtenniskappa heims og situr í tíunda sæti heimslistans.
Truls Möregardh er í hópi bestu borðtenniskappa heims og situr í tíunda sæti heimslistans. Getty/Guenther Iby

„Ég veit að þetta er ekki mjög sænsk hegðun,“ sagði borðtenniskappinn Truls Möregårdh eftir að hafa misst stjórn á sér í örstutta stund í sænsku einvígi á lokamóti heimsmótaraðarinnar í Japan.

Möregardh mætti landa sínum Antoni Källberg í 16-manna úrslitum. Þeir unnu sitt settið hvor og staðan því jöfn, 1-1, þegar Källberg komst í 10-1 í þriðja settinu.

Þá brast Möregardh þolinmæðin og hann sló borðtenniskúlunni frá sér, og gaf hreinlega Källberg ellefta stigið og þar með sigur í settinu.

Möregardh náði hins vegar að vinna næstu tvö sett og þar með sigur í leiknum, og komast í átta manna úrslitin.

„Ef ég hefði ekki gert þetta þá hefði ég ekki unnið leikinn,“ sagði Möregardh um viðbrögð sín, sem sjá má í útsendingu frá leiknum hér að neðan.

„Svona er ég bara. Ég sýni miklar tilfinningar og ég veit að þetta er ekkert voðalega sænsk hegðun. En það er hluti af íþróttum að sýna tilfinningar. Það var kannski aðeins of mikið af neikvæðni í dag en ef ég hefði ekki gert þetta þá hefði ég ekki unnið leikinn,“ sagði Möregardh.

„Ég hef séð hann gera þetta áður svo að þetta kom mér ekki á óvart,“ sagði Källberg um atvikið.

Källberg var nálægt því að tryggja sér sigur í fjórða setti, þegar hann komst í 8-5, en Möregardh sýndi þá þrautseigju og vann settið að lokum 12-10. Hann vann svo lokasettið 11-8.

Möregardh tapaði svo í átta manna úrslitum nú í morgun, gegn Wang Chuqin sem er í efsta sæti heimslistans, 3-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×