Innlent

Út­kall vegna reyks við Borgarholtsbraut

Jón Þór Stefánsson skrifar
Mynd af vettvangi.
Mynd af vettvangi. Vísir

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út skömmu fyrir ellefu í dag vegna reyks við Borgarholtsbraut í Kópavogi.

„Þetta var pottur og eldavél,“ segir Gunnlaugur Jónsson, aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu.

Ekki hafi þurft að slökkva eld og ekkert tjón hafi orðið. Vond lykt hafi verið á vettvangi og slökkviliðið sé að reykræsta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×