Lífið

Fram­bjóðendur stigu trylltan dans með unga fólkinu

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, í miklu fjöri ásamt Eyþóri Wöhler, söngvara Húbbabúbba. 
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, í miklu fjöri ásamt Eyþóri Wöhler, söngvara Húbbabúbba.  aðsend

Frambjóðendur ýmissa flokka stóðu fyrir kosningaveislu eða gleðskap í gærkvöldi í tilefni þess að vika er til alþingiskosninga. Ungir sjálfstæðismenn stóðu fyrir, Project XD í Valhöll, Samfylkingin hélt fögnuð fyrir ungt jafnaðarfólk á skemmtistaðnum Hax á meðan Framsókn var í stuði á Bankastræti 5.

Miðflokkurinn stóð fyrir Kosningarpartýi í Grósku í gærkvöldi en samkvæmt tilkynningu frá flokknum lögðu hátt í 500 ungir kjósendur leið sína í Grósku til að skemmta sér með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, og fleirum. Séra Bjössi, Húbba Búbba og DJ Ökull tróðu upp á skemmtuninni.

„Sigmundur Davíð lét sér ekki nægja að flytja ræðu heldur tók hann sporið með gestum við mikinn fögnuð og komst hann varla út vegna biðraða af ungmennum sem vildu myndir með fyrrum forsætisráðherranum,“ segir í tilkynningunni.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, ásamt Bergþóri Ólasyni, þingmanni flokksins.aðsend

Í myndskeiði hér fyrir neðan má sjá Sigmund og Bergþór Ólason, þingmann Miðflokksins, stíga trylltan dans ásamt ungum kjósendum.

@ungir_xm Takk fyrir geggjað kvöld! 😮‍💨 #fyp #fyrirþig #kosningar2024 #kosningar #miðflokkurinn ♬ original sound - Ungir Miðflokksmenn

Framsóknarflokkurinn stóð einnig fyrir veislu á kosningamiðstöð Sambands ungra Framsóknarmanna fyrir ungt fólk á Bankastræti 5 þar sem að skemmtistaðurinn B5 var áður til húsa. 

Þar var Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, ásamt fleirum í góðu fjöri. 

Frá Kosningapartýi Miðflokksins í gærkvöldi.aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.