Golf

Vann hæsta verð­launa­fé sem golfkona hefur fengið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
 Jeeno Thitikul var að sjálfsögðu mjög ánægð með sigur sinn sem færði henni stóra peningaupphæð auk bikarsins.
 Jeeno Thitikul var að sjálfsögðu mjög ánægð með sigur sinn sem færði henni stóra peningaupphæð auk bikarsins. Getty/Michael Reaves

Jeeno Thitikul tryggði sér sigur á lokamóti LPGA mótaraðarinnar í gær eftir frábæra spilamennsku á lokaholunum.

Thitikul náði fugli og erni á tveimur síðustu holunum og það skilaði henni sigri á CME Group Tour Championship mótinu. 

Sigurinn færði henni fjórar milljónir Bandaríkjadala í verðlaunafé eða 561 milljón íslenskra króna.

Þetta er hæsta verðlaunafé hjá golfkonu á einu móti í sögunni og meira segja hærra en sigurvegarinn fékk á þremur af fjórum risamótum karlanna í ár.

Thitikul lék á sjö höggum undir pari í gær og þar með á 22 höggum undir pari á mótinu.

Hún endaði einu höggi á undan Angel Yin sem var með tveggja högga forskot þegar þær fóru á teiginn á sautjándu holunni. Yin varð að sætta sig við annað sætið og eina milljón í verðlaunafé eða 140 milljónir króna.

Jeeno heitir Atthaya en gengur alltaf undir gælunafni sínu. Hún er bara 21 árs gömul, kemur frá Tælandi og keppti fyrst á LPGA-mótaröðinni árið 2022.

Hún var valin nýliði ársins 2022 og fékk Vare bikarinn í fyrra fyrir að vera með lægsta skorið á mótaröðinni.

Að þessu sinni er hún sú sem vann sér inn hæsta verðlaunaféð á tímabilinu af öllum á mótaröðinni. Heildarverðlaunafé hennar á árinu 2024 var rúmar sex milljónir Bandaríkjadala eða meira en 850 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×