Fótbolti

Amma Bellinghams fór ekki út úr húsi á meðan EM stóð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jude Bellingham á blaðamannafundi fyrir leik Liverpool og Real Madrid.
Jude Bellingham á blaðamannafundi fyrir leik Liverpool og Real Madrid. getty/Jess Hornby

Jude Bellingham, leikmaður Real Madrid og enska landsliðsins, hefur útskýrt af hverju hann ræddi ekki við fjölmiðla á meðan Evrópumótinu í Þýskalandi stóð. Hann segir að fjölmiðlamenn hafi ekki látið fjölskyldu sína vera.

„Það var fjallað um þetta eins og ég væri yfir þetta hafinn en það var ekki þannig,“ sagði Bellingham á blaðamannafundi fyrir leik Liverpool og Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

„Þetta snerist um að fjölmiðlamenn fóru og hittu fjölskyldu mína meðan ég var á mótinu, meðal annars ömmu mína og afa. Mér fannst það ekki rétt og vera virðingarleysi. Ég tók því persónulega og ákvað að einbeita mér bara að fótboltanum og láta verkin tala, í staðinn fyrir að tala við fjölmiðla sem virða mig greinilega ekki.“

Bellingham segir að ágengni fjölmiðla hafi truflað fjölskyldu hans á meðan EM var í gangi.

„Fjölskyldan er í fyrsta sæti. Amma mín vildi ekki fara út úr húsi allt sumarið. Kannski hefði ég átt að láta vita af því svo fólk skildi mína hlið en þetta var aðeins persónulegra svo ég ákvað að halda mér saman,“ sagði Bellingham sem skoraði tvö mörk á EM þar sem Englendingar komust alla leið í úrslit þar sem þeir töpuðu fyrir Spánverjum, 2-1.

Bellingham hefur verið öllu rólegri í vetur en í byrjun síðasta tímabils. Þá skoraði hann fjórtán mörk í fyrstu fimmtán leikjum sínum fyrir Real Madrid í öllum keppnum. Nú eru mörkin aðeins tvö í fjórtán leikjum.

Leikur Liverpool og Real Madrid hefst klukkan 20:00 í kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×