Fótbolti

Ís­land á­fram neðst Norður­landa og næsti mót­herji í 99. sæti

Sindri Sverrisson skrifar
Ísland vann Svartfjallaland fyrr í þessum mánuði en varð svo að sætta sig við tap gegn Wales, þrátt fyrir að Andri Lucas Guðjohnsen kæmi Íslandi yfir í þeim leik.
Ísland vann Svartfjallaland fyrr í þessum mánuði en varð svo að sætta sig við tap gegn Wales, þrátt fyrir að Andri Lucas Guðjohnsen kæmi Íslandi yfir í þeim leik. Getty

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta stendur í stað á nýjum heimslista FIFA sem birtur var í dag. Liðið er í 70. sæti, eða í 33. sæti ef aðeins er horft til Evrópuþjóða.

Íslenska liðið vann fyrr í þessum mánuði 2-0 útisigur í Þjóðadeildinni gegn Svartfjallalandi, sem er í 73. sæti nýja listans, en tapaði 4-1 á útivelli fyrir Wales sem er í 29. sæti listans. Þetta voru síðustu leikir liðsins undir stjórn Åge Hareide en KSÍ vinnur að ráðningu arftaka hans.

Danir eru sem fyrr efstir Norðurlandaþjóða, í 21. sæti, en Svíar fara upp fyrir Tyrki og eru í 27. sæti. Norðmenn fara svo upp um fimm sæti og eru komnir í 43. sæti en Finnar eru aðeins einu sæti fyrir ofan Íslendinga, í 69. sæti. Ef Færeyingar eru taldir með eru þeir þó neðar en Ísland, í 137. sæti.

Argentína er sem fyrr efst á heimslistanum, Frakkland í 2. sæti og Spánn í 3. sæti.

Kósovóar komnir á topp hundrað

Mótherjar Íslands í B/C-Þjóðadeildarumspilinu í mars, Kósovóar, fara upp um tvö sæti og eru í 99. sæti heimslistans.

Heimslistinn ræður styrkleikaflokkum fyrir dráttinn í undankeppni HM, en dregið verður þann 13. desember, í tólf fjögurra eða fimm liða riðla.

Búið er að reikna út hvernig flokkarnir líta út, og einnig er ljóst að Ísland mun spila í fjögurra liða riðli vegna þess að liðið verður upptekið í Þjóðadeildarumspilinu í mars.

Styrkleikaflokkar fyrir drátt í undankeppni HM:

Flokkur 1: Spánn, Þýskaland, Portúgal, Frakkland, Ítalía, Holland, Danmörk, Króatía, England, Belgía, Sviss, Austurríki.

Flokkur 2: Úkraína, Tyrkland, Ungverjaland, Serbía, Grikkland, Slóvakía. (Svíþjóð, Wales, Pólland, Rúmenía, Tékkland og Noregur verða í fimm liða riðlum og koma ekki til greina sem mótherjar Íslands)

Flokkur 3: Skotland, Slóvenía, Írland, Albanía, Norður-Makedónía, Georgía, Finnland, Ísland, Norður-Írland, Svartfjallaland, Bosnía, Ísrael.

Flokkur 4: Búlgaría, Lúxemborg, Kósovó, Hvíta-Rússlnad, Armenía, Kasakstan, Aserbaísjan, Eistland, Kýpur, Færeyjar, Lettland, Litháen.

Flokkur 5 (ekki í riðli með Íslandi): Moldóva, Malta, Andorra, Gíbraltar, Liechtenstein, San Marínó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×