Tónlist

Live in a fishbowl: Al­vöru harðkjarnapönk í boði I adapt

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Strákarnir í I adapt rifjuðu upp gamla takta.
Strákarnir í I adapt rifjuðu upp gamla takta.

Harðkjarnahljómsveitin I adapt steig á svið í nýjasta tónleikaþætti Live in a fishbowl á X-inu 977. Sveitin kom aftur saman í sumar eftir að hafa ekki spilað saman í tólf ár og mun halda risatónleika í Iðnó þann 14. desember.

Áður en að því kemur hituðu Birkir Fjalar Viðarsson og félagar í sveitinni upp í fiskabúri X-ins. Þar spiluðu þeir meðal annars eitt af sínum frægustu lögum Historical Manipulation.

Þetta er tónleikaröð sem tekin er upp í hljóðveri X-ins 977, því sem undanfarin ár hefur verið kallað fiskabúrið. Hið pínulitla stúdíó fékk nafnið upprunalega þegar X-ið var í Aðalstræti með stóran glugga út á Ingólfstorg. Þegar fólk horfði inn af torginu var eins og starfsmenn væru þar inni í fiskabúri.

Sveitina skipa Birkir Fjalar Viðarsson, Ingi Þór Pálsson, Erling Páll Karlsson, Þorsteinn Gunnar Friðriksson og Gunnar Ingi Jones. Sveitin spilar alvöru harðkjarnapönk og var stofnuð árið 2001. Það sætti mikilla tíðinda þegar sveitin tilkynnti endurkomu sína í sumar en strákarnir stigu á svið á tónleikahátíðinni Sátan í Stykkishólmi svo athygli vakti.


Tengdar fréttir

Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu

Biggi Maus er annar gestur í fiskabúri X-ins 977 í nýrri þáttaröð sem birtist á Vísi og ber heitið LIVE IN A FISHBOWL. Þetta er tónleikaröð sem tekin er upp í hljóðveri X-ins 977, því sem undanfarin ár hefur verið kallað fiskabúrið en það er vel við hæfi að Biggi haldi þar nú tónleika enda er nafnið skírskotun í goðsagnakennt lag Maus.

HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977

Fyrstu tónleikarnir í fiskabúri X-ins 977 eru komnir í loftið en um er að ræða nýja þáttaröð sem birtist á Vísi og ber heitið LIVE IN A FISHBOWL. Félagarnir í HAM stíga fyrstir á stokk í tónleikaröð sem tekin er upp í hljóðveri X-ins 977, því sem undanfarin ár hefur verið kallað fiskabúrið og er skírskotun í goðsagnakennt lag Maus.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.