Innlent

Þau sóttu um em­bætti lands­bóka­varðar

Atli Ísleifsson skrifar
Í auglýsingu segir að landsbókavörður þurfi að búa yfir metnaði og framsýni til að leiða Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn til framtíðar.
Í auglýsingu segir að landsbókavörður þurfi að búa yfir metnaði og framsýni til að leiða Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn til framtíðar. Vísir/Vilhelm

Alls sóttu fimmtán manns um stöðu landsbókavarðar sem auglýst var laus til umstóknar í október síðastliðinn. Einn dró umsókn sína til baka.

Þetta kemur fram í svari menningar- og viðskiptasráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. 

Um­sókn­ar­frest­ur rann út 11. nóvember en umsóknirnar eru nú komnar til umsagnar stjórnar Landsbókasafns – Háskólabókasafns. Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir er núverandi landsbókavörður en hún tók við embættinu árið 2007.

Umsækjendur um stöðu Landsbókavarðar:

  • Esbern Erling Hjelm Kjærbo, yfirbókavörður
  • Ghita Oughla, gestgjafi
  • Giulia Gallon, safnaleiðsögumaður
  • Hrafn Sveinbjarnarson, forstöðumaður
  • Joanna Monika Wolanin, gæðaeftirlitsmaður
  • Jódís Skúladóttir, verkefnastjóri
  • Kristján Óli Níels Sigmundsson, aðstoðarlagerstjóri
  • Lísa Zachrison Valdimarsdóttir, forstöðumaður
  • Mohammad Iqbal Ependi, starfsnemi
  • Pontus Erik Gunnar Jarvstad, háskólakennari
  • Rósa Bjarnadóttir, forstöðumaður
  • Serkan Mermer, öryggisvörður
  • Sigurður Ingólfsson, leiðsögumaður
  • Örn Hrafnkelsson, sviðsstjóri

Í auglýsingunni segir að leitað sé eftir faglegum leiðtoga til að leiða stærstu þekkingarveitu þjóðarinnar. „Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn er þjóðbókasafn Íslands og bókasafn Háskóla Íslands og hefur það meginmarkmið að safna öllum íslenskum gögnum, varðveita þau, skrá og flokka. Safnið er öflugur samstarfsaðili Háskóla Íslands og styður við íslenskar rannsóknir með fjölbreyttum hætti. Safnið gegnir forystuhlutverki hvað varðar þróun og nýsköpun á sviði varðveislu og stafrænnar endurgerðar og er í fararbroddi um miðlun og aðgengi að stafrænu efni fyrir landsmenn,“ segir í auglýsingunni.

Þá segir að landsbókavörður þurfi að búa yfir metnaði og framsýni til að leiða Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn til framtíðar. „Landsbókavörður leiðir starfsemi safnsins og annast daglegan rekstur og stjórn þess, undirbýr starfs- og fjárhagsáætlun og stýrir mannauði safnsins. Gerð er krafa um menntun á háskólastigi og staðgóða þekkingu á starfssviði safnsins. Framhaldsmenntun á háskólastigi er kostur. Við mat á umsækjendum er horft til kjörmyndar stjórnenda út frá stjórnendastefnu ríkisins.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×