Stjórn segir uppbygginguna þrekvirki en frjálsíþróttirnar harma stöðuna Árni Sæberg skrifar 18. desember 2024 06:54 Skessan í Kaplakrika var fyrsta knatthús FH með knattspyrnuvelli í fullri stærð. Vísir/Vilhelm Aðalstjórn FH segir þrekvirki hafa verið unnið við byggingu íþróttamannvirkja í Kaplakrika við erfiðar efnahagsaðstæður. Frjálsíþróttadeild félagsins segist harma þá stöðu sem félagið er komið í vegna málsins.
Í gær var greint frá nokkuð dökkri skýrslu sem Deloitte vann fyrir Hafnarfjarðarbæ vegna fyrirhugaðra kaupa bæjarins á Skessunni, knatthúsi sem opnað var með pompi og prakt árið 2019. Þar kemur fram að um fjörutíu prósent af byggingarkostnaði við knatthúsið fór í greiðslur til formanns félagsins og fyrirtækja sem bróðir hans er í forsvari fyrir. Spurningar eru uppi um hvort að allt að 120 til 130 milljónir hafi verið réttilega færðar sem hluti af byggingarkostnaðinum. Gagnsæi ríki í rekstrinum Aðalstjórn FH sá sig knúna til að gefa út yfirlýsingu vegna málsins í gær þar sem ástæður þess hvers vegna stendur til að bærinn kaupi knatthúsið eru raktar, meðal annars. Þar segir að tilgangur þess að fá Deloitte að borðinu hafi verið að fá raunhæft verðmat á Skessunni og tryggja að góð vinnubrögð hafi verið viðhöfð við framkvæmdina. Gegnsæi ríki í rekstri FH og Deloitte hafi fengið fullan aðgang að bókhaldi félagsins við vinnslu skýrslunnar. Félagið hafi sýnt mikinn samstarfsvilja gagnvart þessu verkefni. Einnig skuli bent á að ársreikningar FH og starfseininga þess séu endurskoðaðir og aðgengilegir sem opinber gögn. Ósammála endurskoðendunum Seinni skýrsla Deloitte sýni að byggingarkostnaður Skessunnar hafi verið vel innan skekkjumarka miðað við kostnaðaráætlun eða 2,5 til 4 prósent. Um kaupverð segi Deloitte í fyrri skýrslunni: „Uppreiknaður raunkostnaður FH við framkvæmdirnar nemur 1.529 milljónum króna, miðað við verðlag í mars 2024. Telur Deloitte að viðeigandi væri að Hafnarfjarðarbær myndi horfa til þess kaupverðs, í samræmi við raunkostnað framkvæmdarinnar.“ Í yfirlýsingu stjórnarinnar segir að við þessa umsögn Deloitte sé nauðsynlegt að bæta þeim upplýsingum að fyrirtækið dragi frá, í seinni skýrslunni, upphæð raunkostnaðar eignfærðar 127 milljónir króna, sem séu styrkir, afslættir og samstarfssamningar við styrktaraðila félagsins í tengslum við byggingu Skessunnar. Frá byggingu Skessunnar sumarið 2019.Vísir/Vilhelm „FH er ósammála þeirri ráðstöfun Deloitte, enda hefði bygging Skessunnar ekki verið möguleg án þessarar viðleitni velunnara félagsins.“ Eðlileg hækkun Í skýrslu Deloitte kom fram að engin viðbygging hafi verið í upphaflegri kostnaðaráætlun vegna byggingar Skessunnar en ákvörðun um að bæta slíkri við hafi stóraukið kostnað. Aðalstjórn FH segir þetta einfaldlega rangt. Inni í upphaflegri kostnaðaráætlun hafi verið viðbygging upp á 84 fermetra. Við upprunalega kostnaðaráætlun hafi bæst 216 fermetra stækkun á viðbyggingu. Sé það leiðrétt sé raunbyggingarkostnaður Skessunnar tuttugu prósent hærri en upprunalega hafi verið áætlaður. Sú hækkun eigi sér eðlilegar útskýringar vegna hækkunar á verðlagi yfir það sjö ára tímabil sem það tók að klára framkvæmdina. Greiðslur til bræðranna vel þekktar Það sem sló marga við lestur skýrslu Deloitte voru nokkuð háar greiðslur til bræðranna Viðars og Jóns Rúnars Halldórssona eða félögum þeim tengdum. Viðar er formaður FH og Jón Viðar var um árabil formaður knattspyrnudeildar félagsins. Aðalstjórnin segir að greiðslur til Viðars upp á 72,8 milljónir króna, fyrir að stýra byggingu Skessunnar, hafi verið greiddar yfir tíu ára tíma. Frá 2015 þegar fyrstu teikningar af húsinu voru gerðar þar til 2024 þegar framkvæmdir við húsið kláruðust. Einnig komi fram í skýrslunni að knatthús FH og ytri byrði þeirra hafi verið keypt frá finnska fyrirtækinu Best Hall með milligöngu Jóns Rúnars. Upphæðin sem FH greiddi til Best Hall fyrir ytra byrði og uppsetningu hússins hafi verið um fjórðungur byggingarkostnaðar hússins. Jón Rúnar Halldórsson var formaður knattspyrnudeildar FH frá 2005 til 2019.Vísir/ArnarHalldórsson „Báðar staðreyndirnar eru vel þekktar og hafa legið fyrir um árabil. Hagkvæmnissjónarmið réðu för þegar þessi högun var ákveðin af félaginu.“ Mannvirki Hauka miklu dýrari Aðalstjórn segir ekkert annað knatthús í fullri stærð á Íslandi hafi verið byggt á jafn hagkvæman hátt og Skessan. Lægsta tilboð sem barst Hafnarfjarðarbæ í húsið á sínum tíma frá öðrum en FH hafi að núvirði verið 200 milljón krónum hærra en núvirtur raunbyggingarkostnaður hússins í bókum félagsins í dag. „Til að finna ákveðið samhengi í virði þessara mannvirkja, þá er áætlað virði knattspyrnumannvirkja á umráðasvæði FH í Kaplakrika í dag er um 3.200 milljónir króna og þar af á félagið sjálft um 2.000 milljónir króna. Til samanburðar má nefna að áætlað virði knattspyrnumannvirkja á umráðasvæði Hauka á Ásvöllum er í dag um 5.000 milljónir króna. Hafnarfjarðarbær á öll þau mannvirki. Þá má bæta við til upplýsinga að iðkendur knattspyrnu í FH eru í dag tæplega 1.200, en hjá Haukum eru þeir liðlega 600.“ Hafnfirðingar megi vera stoltir Í niðurlagi yfirlýsingar aðalstjórnarinnar segir að bygging hinna þriggja knatthúsa FH í Kaplakrika sé stærsta einkaframkvæmd íþróttafélags í Íslandssögunni. Mannvirkin hafi öll verið reist af hagkvæmni og litlum efnum, knúin áfram af þrautseigu félagsfólki í sjálfboðastarfi með dyggum stuðningi velunnara og styrktaraðila félagsins. Viðar Halldórsson er formaður FH.Vísir „Þar var unnið þrekvirki við efnahagsaðstæður, sem meirihluta byggingartímans voru erfiðar í bæði sveitarfélaginu og þjóðfélaginu. Hafnfirðingar geta verið stoltir af afrakstrinum, enda um einstaka framkvæmd að ræða. Samstarf FH við Hafnarfjarðarbæ í þessu máli hefur verið farsælt og náið og félagið er þakklátt fyrir það bakland sem það hefur í sveitarfélaginu.“ Frjálsíþróttadeildin hafi aldrei fengið krónu Frjálsíþróttadeild FH sendi sömuleiðis frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Þar segir að frjálsíþróttadeildin harmi þá stöðu sem aðalstjórn félagsins er komin í hvað varðar fjárreiður og rekstur Skessunnar. Samkvæmt skýrslu Deloitte sé margt óljóst og umdeilanlegt hvað varðar bókhald og meðferð fjármuna, svo vægt sé til orða tekið. „Þær upplýsingar sem þar koma fram eru skellur fyrir íþróttastarfsemina í Hafnarfirði. Það skal tekið fram að frjálsíþróttadeildin hefur aldrei fengið greiðslur frá Aðalstjórn FH vegna rekstrartaps enda hefur deildin kappkostað að hafa sinn rekstur réttum meginn við núllið í gegnum árin.“
FH Fótbolti Hafnarfjörður Frjálsar íþróttir Byggingariðnaður Úttekt á byggingu Skessunnar í Hafnarfirði Tengdar fréttir FH-ingar opna nýtt knattspyrnuhús á 90 ára afmælishátíð félagsins Skessan, nýtt knattspyrnuhús, FH-inga verður formlega opnað á laugardaginn en þetta er þriðja knatthúsið sem rís á Kaplakrikasvæðinu. 23. október 2019 08:30 Mest lesið Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Innlent Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Innlent Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Innlent Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Innlent Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Innlent Verkföll hafin í sex skólum Innlent Árásarmaðurinn hafi átt í samskiptum við lykilvitni Innlent Þóra Tómasdóttir strýkur Tesla-eigendum öfugt Innlent Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Innlent Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Innlent Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Skilur vel reiðina sem blossi upp Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Bein útsending: Blaðamannafundur nýs meirihluta í Reykjavík Óljóst með skólahald eftir helgi Trans fólk veigri sér við ferðalögum til Bandaríkjanna Nýr meirihluti muni ekki vaða í stærri deilumál Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Jöklar jarðar rýrna mun hraðar en áður vegna aukinnar hlýnunar Niðurstöðu beðið í Karphúsinu Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Búrfellslundur verður Vaðölduver Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Zúistabræður telja sig ekki hafa fengið sanngjarna meðferð Verkföll hafin í sex skólum Kennaraverkföll skella á Skólameistari gengur út frá því að kennarar leggi niður störf Óvissa um verkföll eftir frestunarbeiðni Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Árásarmaðurinn hafi átt í samskiptum við lykilvitni „Hún verður örugglega afbragðsborgarstjóri“ Heiða Björg verður borgarstjóri Ögurstund, staða Play og óreyndur rútubílstjóri Hellti kveikjarabensíni yfir mann og hótaði að kveikja í Ökklasnúnum Esjufara komið til bjargar Sjá meira
FH-ingar opna nýtt knattspyrnuhús á 90 ára afmælishátíð félagsins Skessan, nýtt knattspyrnuhús, FH-inga verður formlega opnað á laugardaginn en þetta er þriðja knatthúsið sem rís á Kaplakrikasvæðinu. 23. október 2019 08:30