Golf

Tiger og sonur í for­ystu á feðgamótinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods og sonur hans Charlie Woods stilltu sér upp áður en þeir hófu leik á PNC feðgamótinu á Flórída.
Tiger Woods og sonur hans Charlie Woods stilltu sér upp áður en þeir hófu leik á PNC feðgamótinu á Flórída. Getty/Mike Ehrmann

Tiger Woods og sonur hans Charlie eru í góðum málum eftir fyrri hringinn á PNC meistaramótinu.

Mótið er árlegt og þar keppa kylfingar og börn þeirra saman í liði. Úr verður mjög áhugaverð keppni sem margir fylgjast með.

Woods feðgarnir léku fyrstu átján holurnar á 59 höggum eða þrettán höggum undir pari.

Þeir deila reyndar efsta sætinu með Bernhard og Jason Langer annars vegar og Vijay og Qass Singh hins vegar.

Svo skemmtilega vill til að Singh feðgarnir unnu mótið árið 2022 og Langer feðgarnir unnu það í fyrra. Spurning hvort að Woods feðgarnir nái að halda þetta út og tryggja sér sigur í ár.

Tiger er að keppa á sínu fyrsta opinbera móti síðan að hann gekkst undir bakaðgerð í haust sem var aðgerð númer sex á vandamálabakinu hans.

Hans síðasta mót á undan þessu var breska meistarmótið í júlí.

Þetta er fimmta árið í röð sem Tiger og Charlie keppa saman á á þessu móti en á því eru bara spilaðar 36 holur.

Þeir hafa aldrei náð að vinna en komust næst því árið 2021 þegar þeir enduðu í öðru sæti, tveimur höggum á eftir feðgunuum John Daly og John Daly II.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×