Innlent

Egill Þór er látinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Egill Þór Jónsson er látinn eftir hetjulega baráttu við erfið veikindi í á fjórða ár.
Egill Þór Jónsson er látinn eftir hetjulega baráttu við erfið veikindi í á fjórða ár.

Egill Þór Jónsson, teymisstjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er látinn. Hann lét á Landspítalanum við Hringbraut í návist fjölskyldu og vina föstudagskvöldið 20. desember. Hann var 34 ára gamall og hafði undanfarin ár háð harða baráttu við krabbamein.

Greint er frá andláti Egils Þórs í Morgunblaðinu í dag. Þar er námsferill Egils rifjaður upp en hann ólst upp í Breiðholti, gekk í Hólabrekkuskóla, Fjölbrautaskólann í Breiðholti og lærði síðar félags- og fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands.

Egill Þór helgaði sig fólki með fatlanir og geðrænan vanda í starfi. Hann vann sem stuðningsfulltrúi í búsetukjarnanum Rangárseli að loknu BA-prófi í félagsfræði frá 2015 til 2018.

Egill Þór var borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá 2018 til 2022 og varaborgarfulltrúi síðastliðin tvö ár. Hann var öflugur í félagsstörfum bæði í háskólanámi og í stjórnmálum. Þá stakk hann reglulega niður penna og birtist nokkur fjöldi pistla eftir hann í fjölmiðlum, meðal annars á Vísi.

Egill var opinskár varðandi baráttu sína við krabbameinið en hann greindist með eitilkrabbamein um mitt ár 2021. 

Árið 2023 benti allt til þess að sigur hefði unnist á meininu. Bakslag kom upp síðastliðið sumar og dvaldi Egill Þór löngum stundum á sjúkrahúsi með óútskýrð veikindi.

Það var loks í lok ágúst sem Egill Þór fékk greiningu á nýju veikindunum. Það reyndist vera margmisþroski sem mátti rekja til fyrri lyfjameðferða og var forstig hvítblæðis sem hann barðist við fram á síðasta dag.

Eftirlifandi eiginkona Egils Þórs er Inga María Hlíðar Thorsteinsson, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir. Þau eignuðust saman tvö börn, Aron Trausta fimm ára og Sigurdísi þriggja ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×