Lífið

Stjörnu-barn á leiðinni

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Þórhildur Fjóla, Sævar Helgi og Jökull Máni eru öll mjög spennt að hitta laumufarþegann í júlí.
Þórhildur Fjóla, Sævar Helgi og Jökull Máni eru öll mjög spennt að hitta laumufarþegann í júlí.

Stjörnu-Sævar Helgi Bragason og Þórhildur Fjóla Stefánsdóttir, forstöðukona hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Wise, eiga von á barni í júlí.

Fyrir eiga þau soninn Jökul Mána og svo á Sævar Helgi soninn Arnór Braga úr fyrra hjónabandi. Þau hjónin tilkynntu óléttuna á samfélagsmiðlum á gamlársdag.

„Fjölskyldan kveður 2024 með laumufarþega um borð, í júlí fjölgar okkur um eitt,“ segir í Facebook-færslunni.

„Jökull Máni er frekar spenntur að verða stóri bróðir. Og auðvitað afmælisbarnið Arnór Bragi líka sem er þó því miður ekki með á myndinni að þessu sinni. Takk fyrir geggjað ár 2024,“ segir enn fremur.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.