Innlent

Vinnufundur ráð­herra á Þing­völlum hafinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ráðherrar sestir og byrjaðir að fara yfir málin.
Ráðherrar sestir og byrjaðir að fara yfir málin. Vísir/RAX

Ráðherrar í ríkisstjórn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins komu saman á tíunda tímanum í forsætisráðherrabústaðnum á Þingvöllum. Um er að ræða vinnufund ríkisstjórnarinnar til að þétta hópinn enn frekar að sögn forsætisráðherra.

Ekki var gefinn kostur á viðtölum fyrir fundinn en ljósmyndarar miðlanna voru mættir til að mynda ráðherrana í bústaðnum. Að neðan má sjá myndir sem Ragnar Axelsson tók af ráðherrunum mættum til fundar.

Ingurnar, Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra, og Ingileif Friðriksdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra.Vísir/RAX
Eyjólfur Ármannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Kristrún forsætisráðherra.Vísir/RAX
Kristrún fer yfir málin.Vísir/RAX
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra stýrir fundinum.Vísir/RAX
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fer yfir málin.Vísir/RAX
Kristrún og Logi Einarsson fara yfir málin.Vísir/RAX
Kristrún forsætisráðherra, Alma Möller heilbrigðisráðherra og Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.Vísir/RAX
Kristrún Frostadóttir hefur um margt að hugsa á fyrstu dögum sínum sem forsætisráðherra.Vísir/RAX
Alma Möller brosandi í aðdraganda fundarins.Vísir/RAX

Sparnaðarráðum rignir inn í Samráðsgátt stjórnvalda eftir að forsætisráðherra kallaði í gær eftir tillögum frá almenningi og fyrirtækjum um hvar og hvernig megi hagræða í rekstri ríkisins. Rætt var við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra um tillögurnar í fréttum Stöðvar 2 í gær.


Tengdar fréttir

„Ekki gera lítið úr þriðja formanninum“

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, sagði Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, að gera ekki lítið úr Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins og félagsmálaráðherra. Það gerði Kristrún í Kryddsíldinni á gamlársdag eftir að Sigmundur gagnrýndi Ingu og sagði hana þurfa að tala af ábyrgð.

Bjarni sveiflaði servíettunni af gleði

Flestir landsmenn virðast telja Sjálfstæðisflokkinn halda bestu partýin. Formaður Framsóknarflokksins telur landsmenn vanmeta stuðið hjá flokknum.

Metfjöldi sparnaðarráða til nýrrar ríkisstjórnar

Sparnaðarráðum rignir inn í Samráðsgátt stjórnvalda eftir að forsætisráðherra kallaði í dag eftir tillögum frá almenningi, fyrirtækjum og hagsmunaaðilar um hvar og hvernig megi hagræða í rekstri ríkisins. Forsætisráðherra býst við mörgum gagnlegum ábendingum enda hafi hún góða reynslu af slíku samráði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×